Bakarinn óskaði eftir aðstoð lögreglu – Nú á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
Réttarhöld eru hafin í þýsku borginni Nürnberg yfir 43 ára bakara sem ákærður er fyrir að hafa stungið 26 ára mann til bana í febrúar síðastliðnum.
Málið þykir nokkuð óvenjulegt en bakarinn hafði sjálfur hringt í lögregluna skömmu fyrir atvikið og óskað eftir aðstoð vegna manns sem lét öllum illum látum við heimili hans.
Atvikið átti sér stað í febrúar síðastliðnum en yngri maðurinn var þá að sögn með óspektir fyrir utan heimili bakarans.
Í umfjöllun þýska blaðsins Bild kemur fram að í símtalinu við lögreglu hafi bakarinn sagst óttast um líf sitt. Þá hafi hann óttast að lögregla yrði ekki nógu fljót á staðinn og í kjölfarið lýst því yfir að hann ætlaði að taka lögin í eigin hendur.
Bakarinn ber fyrir sig sjálfsvörn og heldur því fram að maðurinn hafi haft í hótunum við hann og hótað að drepa dóttur hans og fjölskyldu.
Saksóknari dregur þá skýringu hins vegar í efa og bendir meðal annars á að fórnarlambið hafi verið stungið í bakið.
Við réttarhöldin hafa einnig komið fram upplýsingar um mögulegan ágreining mannanna vegna skuldar upp á þrjú þúsund evrur, eða rúmlega 400 þúsund íslenskar krónur. Ekki liggur þó fyrir hvaða þátt sá ágreiningur kann að hafa átt í atburðarásinni.
Gert er ráð fyrir að dómur falli í málinu þann 30. nóvember en verði bakarinn fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗