Víða skúrir eða él
Í dag verður suðaustan 5-13 m/s suðvestan- og vestanlands en annars hægari vindur. Það verða stöku skúrir eða él en þurrt að mestu á Norðurlandi. Hitinn verður víða 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands en frost fer minnkandi í öðrum landshlutum. Það bætir í vind á landinu í kvöld.
Á morgun spáir suðaustan 8-13 m/s en 10-18 m/s suðvestantil. Dálítil slydda eða rigning verður með köflum en þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Það bætir í úrkomu og vind annað kvöld.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗