Vaxandi vandræði eru hjá verktökum

Mörg verktakafyrirtæki sitja nú uppi með óseldar íbúðir.

Mörg verktakafyrirtæki sitja nú uppi með óseldar íbúðir. mbl.is/Eyþór

Fjárhagsstaða margra verktakafyrirtækja er orðin afar viðkvæm vegna hárra vaxta og hægari sölu nýrra íbúða. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir það mikil vonbrigði að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda meginvöxtum óbreyttum í 8%.

Í samtali við Morgunblaðið segir Ingólfur að eigið fé verktakafyrirtækja sem sitja uppi með margar óseldar íbúðir brenni hratt upp og sum þeirra séu þegar komin í fjárhagslega erfiðleika.

Hann vísar til nýlegrar könnunar Viðskiptablaðsins sem sýni að nær helmingur verktaka í íbúðauppbyggingu sé með eiginfjárhlutfall undir 5%. Fyrirtækin sem könnunin náði til byggja um þrjár af hverjum fjórum nýjum íbúðum landsins. Ingólfur varar við því að samdráttur í íbúðauppbyggingu muni leiða til nýs íbúðaskorts þegar efnahagslífið taki við sér. Á síðustu sex mánuðum hafi framkvæmdir hafist við 772 íbúðir, 56% færri en á sex mánuðunum þar á undan.

Hann segir háa vexti, aukna skattlagningu og gjaldtöku sveitarfélaga hafa gert verktökum erfiðara fyrir. Vandinn einskorðist ekki við smærri fyrirtæki heldur nái einnig til stærri verktaka með veika eiginfjárstöðu.

Ingólfur bendir jafnframt á að í könnun Samtaka iðnaðarins fyrr á árinu hafi 80% verktaka nefnt háa vexti sem ástæðu þess að sölutími nýrra íbúða væri að lengjast og 67% strangari lántökuskilyrði.

Ástandið bitnar jafnframt á atvinnu í greininni. Starfandi í byggingariðnaði og mannvirkjagerð voru 520 færri í september en ári áður og atvinnulausum í greininni fjölgaði um 34% á sama tímabili.

Ingólfur óttast að áframhaldandi samdráttur í uppbyggingu leiði til þess að framboð nýrra íbúða haldi ekki í við fólksfjölgun þegar hagkerfið tekur við sér. Það geti aftur leitt til aukinnar verðbólgu og vaxtahækkana.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab