„Engin svör hafa fengist“

Helga segir ekki boðlegt að hafa skráningu í íslenskupróf án auglýsingar í tvo tíma.

Skilyrði fyrir því að fá íslenskan ríkisborgararétt er að hafa tekið íslenskupróf, en það er hægara sagt en gert að komast í prófið.

Helga Ragnarsdóttir er gift Bretanum Sam Pegg og þau eiga íbúð hér og tæplega ársgamalt barn. Sam, sem hefur ótímabundið dvalarleyfi, var kominn með rétt til að sækja um ríkisborgararétt í janúar síðastliðnum, en þar sem hjónin voru nýbúin að eignast barn í desember ákváðu þau að bíða fram í janúar með að skoða umsóknina.

„Þegar við förum að skoða þetta á island.is í janúar sést að ekki sé hægt að taka þetta íslenskupróf. Þar stóð bara að verið væri að vinna í þessu og að próf yrðu auglýst síðar.“ Þau héldu að þetta væru tímabundin skilaboð, en þegar ekkert breyttist prófaði Helga að hringja í dómsmálaráðuneytið og í Útlendingastofnun, en þar var fátt um svör.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab