Fékk nóg og rifti samningnum

Mike Jensen

Mike Jensen Ljósmynd/Rhein-Neckar Löwen

Danski handboltamarkvörðurinn Mike Jensen yfirgefur Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi að tímabilinu loknu.

Hann og félagið hafa samið um að rifta samningi hans sumarið 2027, ári áður en hann átti að renna út.

Jensen, sem er 31 árs, vill fá meiri spilatíma. Hann kom frá Veszprém sumarið 2025 en hefur verið á eftir þýska landsliðsmarkverðinum David Späth í goggunarröðinni.

„Þótt mér þyki vænt um að vera hluti af þessu liði vil ég fá að vera meira inni á vellinum,“ segir Jensen í tilkynningu á vef Löwen.

Haukur Þrastarson leikur með Löwen í þýsku úrvalsdeildinni og Elvar Örn Jónsson kemur til félagsins frá Magdeburg næsta sumar.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab