„Ótrúlega neikvætt viðhorf“

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku.

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku gagnrýnir harðlega það íþyngjandi starfs- og skattaumhverfi sem íslenskum fjármálafyrirtækjum er búið.

„En skattarnir og fyrirhuguð hækkun þeirra eru einnig birtingarmynd stærra vandamáls sem er það ótrúlega neikvæða viðhorf sem ríkir gagnvart atvinnulífinu í landinu, og hefur ríkt um langt skeið,“ segir hann í viðtali við Morgunblaðið.

Að mati Ármanns hefur vantað upp á framtíðarsýn og afgerandi aðgerðir hjá stjórnvöldum í þágu atvinnusköpunar. „Þvert á móti virðist viðkvæðið að reyna að hækka álögurnar á þá sem gengur vel, hvort sem um er að ræða bankageirann eða aðrar greinar. Fyrstu viðbrögð eru yfirleitt að leita leiða til að skattleggja meira og lítill skilningur á því að nýsköpun og öflugt atvinnulíf eru forsenda efnahagslegra framfara og þess að geta viðhaldið öflugu velferðarkerfi í landinu.“

Skiptir um vettvang

Ármann er á förum frá Kviku í lok þessa mánaðar og hefur störf hjá fjárfestingafélaginu Pekron á nýju ári.

Þann tíma sem hann stýrði Kviku fóru tekjur bankans úr fjórum milljörðum í tæplega 20 milljarða, lánasafnið stækkaði úr liðlega 20 milljörðum í rúmlega 220 og hlutabréfaverðið fjórfaldaðist hér um bil. 

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab