Ólafur Ragnar þóttist vera byrjaður með dóttur borgarstjórans

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forsesti Íslands var flottur í tauinu þegar Marta María Winkel bauð honum á rúntinn. Í bíltúrnum hann ræddi nýjustu bók sína Vegferð um veröldina. Jakkafötin sem hann klæddist eru 25 ára gömul og eiga það sammerkt með öðrum jakkafötum í fataskápnum hans að hafa enst honum í aldarfjórðung eða lengur.

„Ég er líka ánægður með að ég skuli ennþá komast í þau,“ sagði Ólafur Ragnar sposkur.

Ólafur Ragnar segist snemma hafa áttað sig á því að það skipti máli að vera í réttum fötum. Honum finnst líka mikilvægt að þau séu vönduð svo þau endist.

Aðspurður hvort það hefði verið áskorun að komast enn í jakkafötin svaraði hann einfaldlega: „Ja, það er náttúrulega aðhald.“

Dóttir borgarstjórans vakti forvitni

Í bókinni rifjar Ólafur Ragnar upp þegar hann hélt til náms í Manchester árið 1962, í sinni fyrstu utanlandsferð. Til að komast að því hvað breskir háskólar hefðu upp á að bjóða bankaði hann upp á í breska sendiráðinu við Laufásveg og fletti þar þykkum námskrám þar til hann fann nám við sitt hæfi.

Í Manchester kynntist hann dóttur borgarstjórans. Af bréfunum sem hann skrifaði vinum sínum heima mátti ráða að hann væri jafnvel kominn með kærustu. Þegar hann sneri heim fékk hann engan frið fyrir spurningum um hana. Sagan barst líka til nokkurra borga í Evrópu þar sem bekkjarbræður hans voru við nám.

Skrifaði bókina með blekpenna

Í Vegferð um veröldina segir Ólafur Ragnar líka frá samstarfi sínu við forystufólk víða um heim og veltir fyrir sér hvernig þau kynni mótuðu viðhorf hans og venjur. Bókina skrifaði hann í höndunum með blekpenna sem hann fyllir sjálfur á.

„Ég get ekki hugsað eða skapað einhvern alvörutexta nema með penna,“ sagði hann.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab