Nína Richter skrifar: Erum við of fá fyrir fjölmiðlamarkað?
Ég er að læra undir próf í fjölmiðlarétti. Kennslubókin er frá 2017 og hefur elst misvel eftir köflum. Stjórnarskráin heldur sér ágætlega. Öllu meiri fyrirhöfn fylgir því að komast að því hvað varð um fjölmiðlana sem koma við sögu. Sumir hafa skipt um eigendur, aðrir um nafn og enn aðrir eru hættir. Tveir af fyrrverandi vinnustöðum mínum fóru í sömu fréttatilkynningunni hérna um árið.
Mér er ætlað að kunna skil á fjölmiðlafjölræði. Ég hafði unnið töluvert lengi á fjölmiðlum án þess að heyra þetta orð áður en ég fór í lögfræði. Hugmyndin er blessunarlega einfaldari en orðið. Segjum að ráðherra haldi blaðamannafund klukkan ellefu. Um hádegi get ég lesið á kannski fjórum fréttamiðlum hvað hann sagði. En hvað voru margir blaðamenn á fundinum? Tók einhver eftir því að tölurnar í kynningunni stemmdu ekki við fjárlögin? Fékk sá hinn sami að eyða eftirmiðdeginum í að athuga málið eða þurfti hann að flýta sér aftur upp á ritstjórn að gera eitthvað allt annað? Svo getur auðvitað verið að enginn hafi mætt og að fréttatilkynningunni hafi bara verið dritað sex sinnum í gegnum Chat.
Vorið 2004 höfðum við haft einkarekið sjónvarp í tæp átján ár og vorum komin í heiftarlegt rifrildi um það hver mætti eiga það. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar heitins lagði fram fjölmiðlafrumvarpið. Samkvæmt frumvarpinu átti að setja því mörk að sami eigandi væri að gefa útdagblað og reka útvarps- eða sjónvarpsstöð. Það skipti líka máli hvort hann væri þegar ráðandi í öðrum viðskiptum. Áhyggjurnar voru skiljanlegar. Sá sem á verslunina sem kaupir auglýsinguna, blaðið sem birtir hana og sjónvarpsstöðina sem tekur við hann viðtalið á frekar auðvelt með að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Í umræðum á Alþingi bentu andstæðingar frumvarpsins á að þótt hægt væri að orða þetta allt saman ósköp almennt vissi hvert mannsbarn í þessu litla landi hvaða fyrirtæki þyrfti að taka til hjá sér. Það hét hinu fallega nafni Norðurljós. Svo var það reikningsdæmið. Stór eigandi getur haft óþægilega mikil áhrif á litla ritstjórn. Hann getur líka verið sá eini sem hefur efni á að borga fréttamönnunum laun um næstu mánaðamót. Þann 2. júní synjaði Ólafur Ragnar Grímsson lögunum staðfestingar og varð fyrstur forseta til að beita málskotsrétti 26. greinar stjórnarskrárinnar. Þar fengu höfundar kennslubóka í lögfræði sjálfir tilefni til að uppfæra námsefnið. Alþingi felldi lögin úr gildi áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kom. Þjóðin fékk sem sagt aldrei að svara þessu formlega, en svaraði þessu í staðinn á kaffistofum og í jólaboðum í nokkur ár, og héldu uppi stemningunni fram að hruni.
Með fjölmiðlalögunum 2011 varð auðveldara fyrir lesanda að komast að því hver ætti blaðið sem hann hélt á. Samkvæmt lögunum þurftu fjölmiðlar líka að setja sér reglur um sjálfstæði ritstjórnar gagnvart eigendum. Tveimur árum síðar bættust við reglur um hvað ætti að skoða þegar fjölmiðlafyrirtæki sameinuðust. Tvö dagblöð geta til dæmis sameinast án þess að áskriftin hækki um krónu. En lesandinn getur nú samt tapað einhverju þegar ritstjórum fækkar og áherslur breytast. En hvað um það. Á meðan Alþingi velti því fyrir sér hver mætti eiga blaðið fann kaupmaðurinn aðra leið til að ná í lesandann. Sá sem vildi selja tilgerðarlegri listaspíru í Vesturbænum eitthvað hafði einu sinni ágæta ástæðu til að kaupa auglýsingu í hverfisblaði sem fór inn um lúguna hjá mér, og innihélt fundargerðir borgarráðs og opnunartíma sundlauga Nú gat hann fundið mig á Instagram og „targetað“ mig alveg eftir því hvort að ég hafi farið til útlanda á síðustu tveimur vikum.
En kannski fer þetta hringinn. Það er töff að lesa á pappír og mér skilst að maður fái týpuprik fyrir að standa fyrir utan Kjötborg meðhverfisblaðið í annarri og Club-Mate í hinni.
Samkvæmt Hagstofunni fóru tæpir fimmtán milljarðar króna af íslensku auglýsingafé til erlendra miðla árið 2024. Það var 51 prósent af öllu draslinu. Hluti upphæðarinnar fór í að auglýsa íslenska vöru og þjónustu í útlöndum og hefði seint endað hjá Skessuhorni, með fullri virðingu. En þetta ár eyddu íslenskir auglýsendur fimm prósentum meira en árið áður, að teknu tilliti til verðlags. Samt keyptu þeir minna af auglýsingum hjá innlendum miðlum. Tölur Hagstofunnar um fjölmiðlatekjur sýna að af þeim tekjum sem íslenskir fjölmiðlar höfðu þetta sama ár runnu 88 prósent til fimm rekstraraðila. Þar teljast reyndar með sjónvarpsáskriftir og ýmislegt fleira sem segir lítið um það hversu margir eru á kvöldvaktinni á fréttastofunni. En það sést ágætlega hvar peningarnir liggja.
Þann 31. mars 2023, á afmælisdegi eiginmanns míns, hætti Fréttablaðið að koma út og Hringbraut hætti sjónvarpsútsendingum, eins og eftirlifandi miðlar greindu frá þann dag. „Hæ, elskan, til hamingju með daginn. Ég kem snemma heim.“ Ég hafði skrifað og lesið kvöldfréttir þar, allt fram að dánarstundu og telst því hæfilega hlutdrægur heimildarmaður um þau atvik.
Þann 31. ágúst síðastliðinn sendi Sýn út sinn síðasta sjónvarpsfréttatíma. Ísland í dag fór sömu leið. Ísland í gær. En fréttastofan starfar áfram og lesendur Vísis njóta góðs af vinnu hennar. Í sumar gat ég horft á kvöldfréttir á tveimur stöðvum. Það sem þótti merkilegt öðrum megin komst kannski ekki á blað hjá hinni. Kannski var umfjöllun sleppt vegna náinna tengsla. En núna er bara einn fréttatími á eyjunni. Mér finnst það svolítið búralegt og við sem þjóð megum eiginlega ekki við þessu, svona ímyndarlega séð.
Það er í þessu ljósi sem umræðan frá 2004 hljómar fáránlega í dag. Þá hafði ríkisstjórnin áhyggjur af því að einkaaðilar ættu of mikið af íslenskum fjölmiðlum. Nú auglýsir ríkið eftir umsóknum frá einkamiðlum sem þurfa hjálp við að borga fyrir fréttirnar. Beinn rekstrarstuðningur var lögfestur 2021 og Alþingi endurskoðaði hann í sumar. Í nóvember afgreiddi ríkisstjórnin svo frumvarp um RÚV. Samkvæmt frumvarpinu myndi ríkisframlagið lækka um tíu krónur fyrir hverjar hundrað sem RÚV fær í auglýsingatekjur. Hugmyndin um að setja þak á auglýsingasöluna var látin eiga sig. Ég skil vel að einkamiðlum þyki súrt að keppa við ríkisfjármagnaðan miðil um auglýsingar. Mér finnst það meira að segja smá fyndin pæling, svona þegar ég er í þeim gír. Mér finnst líka hæpið að ganga út frá því að kaupmaðurinn sem hættir að auglýsa á RÚV hringi næst í hverfisblað á Akureyri. Hann er nefnilega líka með símann hjá Mark Zuckerberg, alveg eins og við hin.
Er staðan þá virkilega svona slæm? Já, mér finnst það, þegar ég horfi á hvað hver lokun tekur mikið með sér. Hlaðvarpsstjórnandi getur leyft viðmælanda að tala í tvo tíma. Sumum viðmælendum fer það meira að segja vel, þó að þeir séu fáir og það sé rosalega langt á milli þeirra. Og á meðan við í Reykjavík erum upptekin af því hver fær að auglýsa á RÚV getur héraðsfréttamaður verið sá eini sem spyr af hverju einhverju tilboði í snjómokstur fyrir austan var tekið þótt það væri dýrara. Ég sé ekki alveg hver á að taka það símtal ef héraðsblaðið lokar yfir helgi og það er bara einn starfsmaður að vinna þar sem þarf líka að komast til Tenerife annað slagið.
Erum við kannski bara of fá til að dæmið gangi upp? Ég kannast við þennan vanda úr alþjóðasamstarfi. Íslendingurinn á fundinum fær sömu þrjú hundruð síðurnar til yfirlestrar og Þjóðverjinn. Það verður enginn svo elskulegur að senda okkur bara fyrstu tvær síðurnar af því að við erum svo fá. Við viljum það heldur ekki, við erum stórasta land í heimi og bókmenntaþjóð að auki. Eins tekur það blaðamann jafnmarga klukkutíma að fara yfir útboðsgögn hvort sem tíu þúsund manns lesa tungumálið eða tíu milljónir. Við erum vissulega færri til að borga honum fyrir daginn. En ég meina, er lýðræðið eitthvað minna mikilvægt í litlum löndum?
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗