Anna Þorvaldsdóttir verðlaunuð
Anna Þorvaldsdóttir tónskáld hlaut á dögunum sín önnur Ivor Novello-verðlaun fyrir besta stóra tónverkið. Verðlaunin hlaut hún fyrir verkið „Before We Fall“ sem er sellókonsert sem pantaður var af Sinfóníuhljómsveit San Francisco, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fílharmóníuhljómsveit Helsinki, Sinfóníuhljómsveit Óðinsvéa og BBC Radio 3.
Í tilkynningu segir að Anna lýsi innblæstrinum að baki konsertinum sem „hugmyndinni um að riða á brúninni“. Verkið var frumflutt á BBC Proms 13. ágúst 2025 af Sinfóníuhljómsveit BBC undir stjórn Evu Ollikainen en Johannes Moser var einleikari, Ollikainen og Moser fluttu verkið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg Hörpu 4. september 2025.
Í umsögn dómnefndar segir að „Before We Fall“ sé „tæknilega og tilfinningalega einstakt verk sem færir sellóið út fyrir hefðbundið umhverfi sitt af sköpunargleði, krafti og hugmyndaauðgi“.
Verðlaunaafhendingin er í tilkynningu sögð marka ný og mikilvæg tímamót í 71 árs sögu Ivor Novello-verðlaunanna þar sem nú koma saman tónskáld sem starfa þvert á greinar og svið, allt frá kvikmyndum, sjónvarpi og tölvuleikjum svo fátt eitt sé nefnt.
Aðrir sem hlutu verðlaun voru m.a. Daniel Pemberton sem var valinn tónskáld ársins en hann hefur samið tónlist við kvikmyndir og sjónvarpsþætti á borð við The Drama, Project Hail Mary, Spider-Man: Into the Spider-Verse, Across the Spider-Verse, Slow Horses, Black Mirror og The Mortician.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗