Trump hafði engan tíma fyrir Kim Jong Un
Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa verið of upptekinn á ferð sinni um Asíu til að hitta Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, eins og hann hafði stungið upp á fyrir ferðina.
„Sambandið er til staðar, en við hittumst ekki,“ sagði Trump, að sögn Gabe Gutierrez, fréttamanns NBC News, sem sagðist hafa rætt við Trump á flugi þeirra frá Asíu aftur til Washington.
Eiga fundinn inni
„Það voru of margir fundir,“ sagði Trump, að sögn Gutierrez. „Það hefði ekki gengið upp.“
„Við munum eiga þann fund einhvern tímann,“ bætti hann við.
Trump hitti Kim þrisvar sinnum á fyrra kjörtímabili sínu í Hvíta húsinu.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗