Give-drápin: Myrti kærustu sína og dóttur
Íbúar smábæjarins Give á Jótlandi eru í áfalli eftir að fjölskylda fannst látin í íbúð þar í gær og bætti ekki úr skák þegar lögregla greindi frá því í kvöld að þar hefði 62 ára gamall maður myrt 48 ára gamla kærustu sína og tíu ára dóttur þeirra áður en hann stytti sér aldur. Ljósmynd/Facebook-síða lögreglunnar á Suðaustur-Jótlandi
Rannsóknarvinna lögreglunnar á Suðaustur-Jótlandi í Danmörku, í máli þriggja manneskja, sem fundust látnar í íbúð í Give í gærmorgun, bendir öll til þess að þar hafi harmleikur átt sér stað þegar 62 ára gamall karlmaður myrti 48 ára gamla kærustu sína og tíu ára dóttur þeirra áður en hann stytti sjálfum sér aldur.
Frá þessu greinir staðarlögreglan í fréttatilkynningu nú í kvöld og segir Avisen Danmark fólk í áfalli í þessum rúmlega 5.000 íbúa smábæ á Jótlandi.
Tilkynnt var um látið fólk í íbúðinni klukkan 10.01 að staðartíma í gærmorgun og hélt lögregla þegar á staðinn með miklum viðbúnaði. Síðar um daginn handtók lögregla fjóra einstaklinga sem hún taldi tengjast málinu, en lét þá lausa undir kvöld í gær.
Aðgerðamiðstöð á vettvangi
„Gæta þarf tillitssemi í garð hinna látnu og aðstandenda þeirra,“ er haft eftir Brian Skovrup Christensen aðstoðarlögreglustjóra umdæmisins í tilkynningunni og í framhaldinu að lögregla muni fyrst um sinn veita takmarkaðar upplýsingar um málið af þessum sökum.
Hefur lögregla komið sér upp aðgerðamiðstöð á vettvangi þar sem tæknideild vinnur nú að öflun sönnunargagna og vísbendinga annarra um hvað gerðist í íbúðinni. Ekkert er látið uppi í tilkynningu lögreglu um hvernig maðurinn er talinn hafa myrt kærustu sína og dóttur auk sjálfs sín.
Leggur Christensen áherslu á að um einangrað atvik sé að ræða og engin ástæða sé fyrir íbúa svæðisins að óttast um öryggi sitt.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗