Fór til Bandaríkjanna til að láta myrða sig
Saksóknarar halda því fram að Hall hafi lokkað Exelby til Bandaríkjanna áður en hann myrti hana í október í fyrra og gróf lík hennar. Ljósmynd/Unsplash
Saksóknarar í borginni Ocala í Flórída-ríki í Bandaríkjunum hafa lagt fram ákæru á hendur Dwain C. Hall, bifvélavirkja og dráttarbílstjóra, sem er sakaður um að hafa rænt og myrt Soniu Exelby frá Portsmouth á Englandi.
The Guardian greinir frá.
Saksóknarar halda því fram að Hall hafi lokkað Exelby til Bandaríkjanna áður en hann myrti hana í október í fyrra og gróf lík hennar. Hall hefur neitað sök.
Leitaði að enhverjum til að svipta sig lífi
Hvarf Exelby af heimili sínu á síðasta ári varð kveikjan að alþjóðlegri rannsókn sem endaði með handtöku Halls í nóvember sama ár.
Saksóknarar hafa bent á að Exelby hafi átt við geðræn vandamál að stríða en stuttu áður en hún hvarf hafði hún, í færslu á samfélagsmiðlum, sagst vera að leita að einhverjum til að binda enda á líf sitt.
Í eiðsvarinni yfirlýsingu vegna handtöku Halls kom fram að Exelby hefði áður gert grein fyrir sjálfsvígshugsunum sínum og rannsakendur í málinu héldu því fram að Hall hefði vitað af viðkvæmu ástandi hennar og nýtt sér það til að fá hana til Flórída.
Yfirvöld í Flórída segja Exelby hafa farið til Bandaríkjanna, að því er virðist, í þeim tilgangi að verða mögulega fyrir kynferðislegri misnotkun, pyntingum og morði af hálfu óþekktra einstaklinga sem þar búa.
Enginn skortur á siðlausum körlum
Þegar Exelby lenti í Bandaríkjunum hafi Hall sótt hana á flugvöllinn og ekið henni í leiguhúsnæði á vegum Airbnb. Þar hafi rannsakendur fundið sönnunargögn sem þeir segja tengja hann við hvarf hennar og dauða, þar á meðal færslur á bankakortum hennar og myndband af Exelby í farsíma Halls.
Amy Berndt aðstoðarsaksóknari sagði í dómsal að foreldrar Exelby hefðu átt við geðræn og fíknivandamál að stríða. Það hafi dóttir þeirra líka gert en hún hafði, að sögn Berndts, tvívegis reynt að svipta sig lífi.
Exelby hafði heimsótt vefsíðu sem sýndi gróft kynferðisofbeldi gegn konum, þar sem Hall var meðal nokkurra karla sem höfðu samband við hana.
Að sögn Berndt var Exelby að reyna að finna einhvern sem myndi drepa hana.
„Því miður var enginn skortur á siðlausum körlum sem voru reiðubúnir að drepa Soniu [Exelby] á eins kvalafullan og viðurstyggilegan hátt og hugsast gæti,“ sagði aðstoðarsaksóknarinn.
Hall neitar sök
Hall hefur neitað að hafa myrt Exelby en viðurkenndi í yfirheyrslu hjá lögreglu að hann hefði verið í sambandi við hana og að þau hefðu átt í nánu sambandi.
Sönnunargögn sem tengja Hall við dauða Exelby eru meðal annars skófla með blóði Exelby, farsímagögn og hnífur sem fannst heima hjá vini sakborningsins.
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta samtökin, s. 1799, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected], síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗