„Get alveg tekið 200 km á hlaupabretti“

Karlotta og Sigurjón klár í slaginn fyrir 50 tíma í ræktinni til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands frá klukkan 08 í fyrramálið, föstudagsmorgun. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta byrjaði eiginlega bara með samtali hjá mér og Sigurjóni [Erni Sturlusyni] eiganda Ultra Form þar sem ég er að æfa,“ segir Karlotta Ósk Óskarsdóttir hlaupakona sem getið hefur sér góðan orðstír í 500 og rúmlega það kílómetra hlaupum undanfarið og sópað að sér öllum húfum sem í boði eru hjá Félagi 100 kílómetra hlaupara, en eins og fram hefur komið í viðtölum við Karlottu eru húfur í mismunandi litum veittar þar fyrir svo og svo löng hlaup.

Samtal þeirra Sigurjóns, rómaðs hlaupara og íþróttagarps, þróaðist út í að þau hyggjast safna áheitum og styrkja Krabbameinsfélag Íslands með 50 klukkustunda samfelldri hreyfingu sem hefst klukkan 08 í fyrramálið, föstudag, og stendur til klukkan 10 á sunnudagsmorgun.

„Ég sagði við Sigurjón „ja, ég get alveg tekið 200 kílómetra á hlaupabretti“ og hann hugsaði þá með sér að hann myndi þá æfa í salnum á meðan, stöðin yrði opin allan sólarhringinn meðan á þessu stendur og fólk gæti komið og æft með okkur og hvatt okkur,“ segir hlaupadrottningin sem lýst hefur slíkum þjáningum og blöðrum á fótum í ýmsum mörg hundruð kílómetra hlaupum hingað og þangað um heiminn að blaðamaður ákvað að hætta að hlaupa, svona að mestu, eins og maðurinn sem hafði lesið svo mikið um skaðsemi áfengis að hann ákvað að hætta að lesa.

Hvað sem því líður samdist með þeim Sigurjóni að fara í málið og þau tvö verða á fullu í Ultra Formi á Gylfaflöt 10 í Grafarvogi frá því í fyrramálið og fram á sunnudag.

Hér má heita á Karlottu og Sigurjón og styrkja Krabbameinsfélagið, en Karlotta nefnir það einmitt við blaðamann að markmiðið, fyrir utan að safna fyrir göfugt málefni og öflugt félag, sé að vekja fólk til umhugsunar um að hreyfa sig, vera ekki bara í sófanum. „Fitusöfnun og hreyfingarleysi er gósenland sumra krabbameina,“ segir Karlotta blákalt.

Fer reyndar á klósettið 

Og þarna eru engar pásur, bara maraþonkeyrsla?

„Ég ætla reyndar alveg að fá að fara á klósettið og kannski borða aðeins og teygja og eitthvað svona,“ segir Karlotta glettin, manneskja sem hljóp 740 kílómetra hlaup í Sri Chinmoy-ofurmaraþoninu í Búlgaríu í vor og langaði þá til að gubba af þreytu.

Í komandi áheitasöfnun mun hún hlaupa á svokölluðu Air Runner-bretti sem hlauparinn knýr sjálfur og er um 30 prósentum djöfullegra að hlaupa á en hefðbundnu hlaupabretti. „Þetta eykur á þjáninguna,“ segir kona sem virðist njóta þess að þjást, enda sagði Khalil Gibran í Spámanninum að þjáningin væri fæðingarhríð skilningsins.

Ætla sér í tvær milljónir

„Við viljum bara fá alla til að koma og hvetja, fólk þarf ekki að skrá sig, allir mega koma og Halla [Þorvaldsdóttir] framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins ætlar að byrja hlaupið með mér í fyrramálið, hún er hlaupari,“ segir Karlotta Ósk Óskarsdóttir hlaupadrottning, klár í slaginn í fyrramálið og mbl.is mun að sjálfsögðu fylgjast með þeim Sigurjóni fram á sunnudag.

Markið er sett á að safna tveimur milljónum króna fyrir Krabbameinsfélagið þessar 50 klukkustundir og tíminn einn mun leiða í ljós hvernig til tekst.

„En ég fæ enga húfu fyrir þetta,“ segir Karlotta að lokum, enda búin að fá allar mögulegar húfur frá Félagi 100 kílómetra hlaupara eins og staðan er í dag.

Kynningarplakat átaksins. Viltu vera með, hvetja eða bara horfa á? Allir velkomnir í Ultra Form, engin skráning. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab