Þessu hverfi hefur ekkert verið sinnt sérstaklega vel

Björg Magnúsdóttir segir brýnt að ráðast í nauðsynlegt viðhald á Laugardalslaug. Samsett mynd

Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar segir uppsafnaða viðhaldsþörf til margra ára og jafnvel áratuga blasa við í Laugardalslaug. 

Var hún innt viðbragða við Facebook-færslu Ásmundar Helgasonar útgefanda þar sem hann lýsti slæmum aðbúnaði í Laugardalslaug.

„Það liggur alveg fyrir að þessu hverfi hefur ekkert verið sinnt sérstaklega vel og það hefur ekki verið farið sérstaklega vel með eigur borgaranna þarna,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Ekki vel sinnt bú

„Við erum ekkert að taka við sérstaklega vel sinntu búi þarna,“ segir Björg og heldur áfram: „Við erum með þessi mál í skoðun hjá meirihlutanum og munum kynna okkar endurreisnaráætlun fyrir Laugardalinn á næstunni.“

Hún segir mikið um að vera í Laugardalnum og nefnir meðal annars fyrirhuguð niðurrif á stúkunni við Laugardalslaug og fyrstu skóflustunguna að nýrri Þjóðarhöll sem tekin var fyrir viku.

„Mér finnst skipta miklu máli að hugsa þetta dálítið heildstætt,“ segir hún. 

Björg segir Laugardalslaug skipa sérstakan sess í hugum borgarbúa.

Björg segir Laugardalslaug skipa sérstakan sess í hugum borgarbúa. mbl.is/Karítas

Drottning okkar sundlauga

Björg segir Laugardalslaug skipa sérstakan sess í hugum borgarbúa og að brýnt sé að ráðast í nauðsynlegt viðhald á henni.

„Þetta er drottning okkar sundlauga og fastur viðkomustaður í deginum hjá rosalega mörgum Reykvíkingum. Við áttum okkur alveg á því að það þarf að fara í viðhald á lauginni en við viljum þá vera með skýr plön um hvernig það verður gert og hvað það tekur langan tíma.“ 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab