„Mér finnst að Gylfi eigi að spila alla leiki“

Gylfi Þór Sigurðsson.

„Ég er auðvitað ekki hlutlaus, en ég hef aldrei leynt þeirri skoðun minni að mér finnst að Gylfi eigi að spila alla leiki með landsliðinu og ég stend við það,“ sagði fyrrverandi knattspyrnu- og landsliðsmaðurinn Kári Árnason í samtali við mbl.is.

Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti leikmaður í sögu karlalandsliðsins, hefur verið inn og út úr liðinu frá því að Arnar Gunnlaugsson tók við þjálfun þess í janúar í fyrra. Kári og Gylfi léku saman í gullaldarliði Íslands sem fór á EM 2016 og HM 2018.

Þarf að fórna framherja

Kári segir þó ljóst að það kosti sitt að koma Gylfa fyrir í byrjunarliðinu þar sem Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson séu fyrsta val landsliðsþjálfarans þegar kemur að miðjumönnum liðsins.

„Ef Gylfi kemur inn þarftu hins vegar að setja einhvern á bekkinn og það gefur augaleið að þá þarftu líklegast að fórna öðrum hvorum framherjanum. Arnar hefur spilað bæði 4-4-2 og 4-3-3, þannig að það munu koma leikir þar sem Orri Steinn og Andri Lucas verða ekki saman frammi.“

Frábært framherjapar

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði fjögur mörk í tveimur leikjum gegn Búlgaríu og Lúxemborg í nýliðnum landsleikjaglugga. Orri Steinn Óskarsson skoraði eitt mark og kom að öllum þremur mörkum Íslands í 3:0-sigrinum gegn Lúxemborg.

„Þeir hafa auðvitað báðir verið mikið meiddir, en það leikur enginn vafi á því að þeir eru frábært framherjapar. Það munu koma leikir þar sem það hentar einfaldlega ekki að vera með tvo framherja og þannig er það bara í landsliðsfótbolta. Arnar hefur verið duglegur að fylgja eigin sannfæringu og hann vill að sjálfsögðu búa til sitt lið. Hann er kominn vel áleiðis með það og það verður spennandi að sjá framhaldið,“ sagði Kári.

Ítarlegt viðtal við Kára Árnason má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag eða með því að smella hér.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab