Aron Einar lofsyngur eiginkonu sína
Aron Einar Gunnarsson ásamt Kristbjörgu Jónasdóttir eiginkonu sinni, sonum þeirra þremur og foreldrum sínum eftir lokalandsleikinn á mánudaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Knattspyrnumaðurinn og fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fór fögrum orðum um eiginkonu sína Kristbjörgu Jónasdóttur í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum Instagram.
Aron Einar, sem er 37 ára gamall, lagði landsliðsskóna á hilluna á mánudaginn var eftir leik Íslands og Lúxemborgar í 4. riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar.
Miðjumaðurinn kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og jafnaði um leið landsleikjamet karlalandsliðsins þegar hann lék sinn 113. A-landsleik.
Bara ef þau vissu helminginn
„Kristbjörg, minn harðasti stuðningsmaður, skilningurinn á því hvað landsliðið skipti mig máli, allur tíminn í burtu, ferðalögin, álagið sem fólk tekur sem sjálfsögðum hlut, ég geri það svo sannarlega ekki!“ skrifaði Aron í færslu sinni á Instagram.
„Ég elska þig og elska það að hafa farið í gegnum þetta ferðalag með sálufélaga mínum, bara ef þau vissu helminginn,“ bætti Aron meðal annars við.
Í færslunni þakkaði hann einnig foreldrum sínum, systkinum og sonum sínum þremur en hann er núna samningsbundinn Qatar í efstu deild Katars.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗