Telja of langt gengið
Nefndin styður heildarendurskoðun laganna og fagnar því að kveðið verði á um neyðarstjórnir sveitarfélaga í lögum. Hlutverk þeirra yrði meðal annars að tryggja grunnþjónustu í neyðarástandi. mbl.is/Kristinn Magnússon
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins telur að frumvarp dómsmálaráðherra til nýrra laga um almannavarnir þrengi um of að sjálfstjórn sveitarfélaga.
Nefndin gagnrýnir einkum að neyðarstjórnum sveitarfélaga verði gert að fylgja fyrirmælum aðgerðastjórnar í héraði, að því er fram kemur í umsögn sem birt hefur verið á vef Alþingis.
Hún leggur til að stjórnirnar samhæfi aðgerðir sínar og skiptist á upplýsingum og að sveitarstjórnir haldi ákvörðunarvaldi yfir eigin verkefnum.
Nefndin styður heildarendurskoðun laganna og fagnar því að kveðið verði á um neyðarstjórnir sveitarfélaga í lögum. Hlutverk þeirra yrði meðal annars að tryggja grunnþjónustu í neyðarástandi.
Í 32. gr. frumvarpsins er lagt til að þær fylgi fyrirmælum aðgerðastjórnar vegna aðgerða til að fyrirbyggja vá eða bregðast við henni. Að mati nefndarinnar er óljóst við hvaða aðstæður skyldan gildi og hvaða verkefni sveitarfélaga geti fallið undir hana.
Þjónustan þarf að haldast gangandi
Nefndin vísar til reynslunnar af brottflutningi íbúa Grindavíkur og af kórónuveirufaraldrinum. Áföll geti staðið mánuðum eða árum saman og þá þurfi sveitarfélög að halda uppi skólastarfi, félagsþjónustu og þjónustu við aldrað og fatlað fólk.
Til þess þurfi sveitarstjórnir að geta ráðstafað starfsfólki og fjármunum. Ábyrgð á þjónustunni, ákvörðunarvald og fjárráð þurfi því að haldast í hendur, að mati nefndarinnar.
Nefndin vill einnig að sveitarfélög verði talin upp meðal viðbragðsaðila almannavarna á landsvísu. Samkvæmt frumvarpinu fara sveitarfélög með almannavarnir í héraði í samvinnu við ríkið. Þau eru þó ekki sérstaklega talin upp meðal viðbragðsaðila á landsvísu.
Samkvæmt almennu ákvæði frumvarpsins teljast þeir sem fá hlutverk í viðbragðsáætlun einnig til viðbragðsaðila. Nefndin vill jafnframt að fulltrúi almannavarnanefndar eigi áfram fast sæti í aðgerðastjórn í héraði.
Vill skýrari verkaskiptingu á hættustundu
Í frumvarpinu er lögreglustjórum falin bæði stjórn og samhæfing almannavarnaaðgerða í héraði. Nefndin telur óljóst hvernig sú tilhögun samrýmist til dæmis lögbundinni stjórn slökkviliðsstjóra á slökkvistarfi og faglegri ábyrgð innan heilbrigðisþjónustunnar. Hún leggur til að lögreglustjóri beri ábyrgð á samhæfingunni og að hver viðbragðsaðili stjórni þeim verkþáttum sem hann ber ábyrgð á samkvæmt lögum.
Lögreglustjóri færi þó með stjórn björgunarsveita við björgun, leit og gæslu á landi að því marki sem hún er ekki falin öðru stjórnvaldi í lögum.
Nefndin styður ákvæði frumvarpsins um að ríkislögreglustjóri geti gripið til nauðsynlegra aðgerða á hættustundu til að varna yfirvofandi tjóni.
Hún vill að skýrt verði tekið fram í lagatextanum að hættan þurfi að vera raunveruleg og yfirvofandi, að vægari úrræði dugi ekki og að aðgerðirnar gangi ekki lengra en nauðsyn krefur. Snerti þær verkefni sveitarfélags vill nefndin að haft verði samráð við sveitarfélagið áður en ákvörðun er tekin, eftir því sem aðstæður leyfa.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗