United og Pochettino fá undanþágu

Mauricio Pochettino situr fyrir svörum blaðamanna í fyrsta skipti hjá United á morgun. AFP/Kevin Cox

Manchester United hefur fengið leyfi frá ensku úrvalsdeildinni til að halda fyrsta blaðamannafund nýs knattspyrnustjóra, Mauricio Pochettino, hálftíma síðar en venjulega er leyfilegt.

Blaðamannafundur Pochettinos fyrir leik United og Liverpool á Anfield á sunnudag hefst klukkan 14 á morgun en samkvæmt reglum eiga slíkir fundir ekki að byrja seinna en 13:30.

Steven Railston hjá Manchester Evening News greinir frá því að United hafi óskað eftir undanþágunni vegna annasamrar viku Pochettinos.

Hann kom til Manchester á miðvikudag eftir að hafa lokið störfum sínum sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.

Argentínumaðurinn tók við af Michael Carrick og stýrir United í fyrsta sinn í leiknum gegn Liverpool.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab