Mikil viðurkenning fyrir Sveindísi
Sveindís Jane Jónsdóttir hefur verið valin í annað úrvalslið bandarísku NWSL-deildarinnar í fótbolta eftir gott tímabil með Angel City.
Landsliðsframherjinn skoraði tíu mörk í 24 deildarleikjum og var markahæst hjá félaginu. Hún gaf einnig fjórar stoðsendingar og kom því að fjórtán mörkum, fleiri en nokkur annar leikmaður liðsins.
Angel City hafnaði í fimmta sæti deildarinnar en féll úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Sveindís var ein fjögurra leikmanna félagsins sem hlutu sæti í öðru úrvalsliðinu.
NWSL velur tvö úrvalslið að tímabili loknu og Sveindís er einn þriggja framherja í öðru liðinu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗