Byrjaður með áhrifavaldi stuttu eftir lát konu sinnar

Isaiah Washington er þekktur fyrir leik sinn í Grey's Anatomy.

Isaiah Washington er þekktur fyrir leik sinn í Grey's Anatomy. Skjáskot/Imdb

Leikarinn Isaiah Washington er búinn að finn ástina aftur. Leikarinn sem gerði garðinn frægan í fyrstu þáttaröðunum í Grey's Anatomy missti eiginkonu sína í fyrra. 

Washington opnaði sig um ástina á Instgram í vikunni. Hann sagðist hafa kynnst mörgum stórkostlegum konum á ævinni en engri eins og Kei Bennett, sem er nýja kærastan. Bennett er eins konar áhrifavaldur og býr til efni fyrir samfélagsmiðla. 

„Ég er ekki aðeins himinlifandi yfir því að hafa kynnst henni síðustu níu mánuði, þar sem ég hef talað við hana tímunum saman á hverjum einasta degi. Ég er algjörlega gáttaður á því hvernig nokkur karlmaður í fortíð hennar gat skaðað hana, gert lítið úr henni, sýnt henni vanvirðingu eða jafnvel svikið hana á hinn ömurlegasta hátt,“ skrifaði Washington meðal annars í langri færslu þar sem hann lýsti yfir ást sinni. 

Rúmt ár er síðan að eiginkona Washington lést í kjölfar alvarlegrar heilablæðingar. Hún var aðeins 56 ára þegar hún lést. Washington hélt fráfallinu leyndum í 16 mánuði af virðingu eiginkonu sína sem var lítið fyrir sviðsljósið. Andlátið var gríðarlegt áfall fyrir fjölskylduna en saman áttu þau þrjú börn og voru gift í 29 ár. 

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab