Heimsfrægu tvíburasysturnar létust sama dag – Nú hefur kveðjubréf þeirra verið birt

Ári eftir andlát þýsku tvíburasystranna Alice og Ellen Kessler, sem um áratugaskeið voru meðal þekktustu skemmtikrafta Evrópu, hefur kveðjubréf þeirra til nánustu vina verið gert opinbert.

Systurnar voru 89 ára þegar þær fengu dánaraðstoð á heimili sínu í Grünwald í útjaðri München í nóvember í fyrra. Andlát þeirra vakti heimsathygli á sínum tíma en í bréfinu varpa þær frekara ljósi á ástæður ákvörðunar sinnar.

Breska blaðið Guardian fjallar um bréfið, sem vinkona systranna hefur nú gert opinbert.

„Kæru vinir, okkur þykir leitt að hafa valið þessa leið en vegna heilsufarsvandamála okkar höfðum við ekki lengur nein lífsgæði,“ skrifuðu systurnar.

Sjá einnig: Kessler tvíburarnir ákváðu að deyja - Óaðskiljanlegar frá upphafi til enda

Þær sögðust báðar glíma við hjartavandamál auk þess sem þær hefðu misst bragð- og lyktarskyn. Þá hafði Ellen fengið heilablóðfall sem hefði haft mikil áhrif á lífsgæði hennar.

Frétti af andláti þeirra í útvarpinu

Systurnar höfðu undirbúið lífslok sín í samstarfi við samtök sem veita dánaraðstoð í Þýskalandi en haldið áformum sínum leyndum fyrir vinum sínum.

Bréfin voru borin út í pósti til þeirra sem stóðu systrunum næst. Systurnar létu einnig skartgripi úr eigin safni fylgja bréfunum að gjöf til vina sinna.

Systurnar saman árið 1959. Mynd/Getty

Ein þeirra sem fékk slíkt bréf var hin 97 ára gamla leikkona Bibi Johns, sem hafði verið náin vinkona systranna allt frá því að þær kynntust við tökur kvikmyndarinnar La Paloma árið 1959.

Hún frétti af andláti þeirra í útvarpinu áður en hún hafði tækifæri til að opna bréfið.

„Þetta var mikið áfall. Alice og Ellen voru mér sem systur,“ sagði hún í samtali við þýska blaðið Bild.

„Mér líður eins og þær hafi einfaldlega farið í langt ferðalag. Ég bíð enn eftir því að þær hringi í mig.“

Óaðskiljanlegar alla tíð

Kessler-systurnar öðluðust alþjóðlega frægð fyrir söng sinn og dans og nutu mikilla vinsælda í sjónvarpi á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, einkum á Ítalíu og í Bandaríkjunum.

Þær voru afar samrýndar alla tíð, höfðu gert með sér samkomulag um að hvorug þeirra myndi giftast og bjuggu síðustu æviárin í húsi sem skipt hafði verið í tvo jafn stóra hluta.

Í viðtali við ítalska dagblaðið Corriere della Sera árið áður en þær létust höfðu systurnar lýst því hversu erfitt þeim þætti að hugsa til þess að önnur þeirra þyrfti að lifa hina.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab