Engin skýring á brotthvarfi Tom Brady
Tom Brady, fyrrverandi leikstjórnandi í amerískum fótbolta sem vann sjö Super Bowl-titla, hefur slitið tengslum sínum við enska knattspyrnufélagið Birmingham City eftir þrjú ár.
Hinn 49 ára gamli Brady gerðist minnihlutafjárfestir árið 2023 og var formaður ráðgjafarnefndar.
Birmingham staðfesti brotthvarf hans á miðlum sínum og þakkaði honum fyrir stuðninginn. Engin ástæða var gefin fyrir ákvörðuninni.
Brady átti 3,3 prósenta hlut án atkvæðisréttar og gegndi engu daglegu hlutverki hjá félaginu, samkvæmt The Athletic.
Birmingham er efst í B-deildinni á markatölu eftir 15 leiki. Liðið er jafnt að stigum við Middlesbrough og Stoke City í baráttunni um að komast í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn síðan 2011.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗