Manstu þegar Birna giftist Jakobi Frímanni í gullkjól?

Birna Rún Gísladóttir og Jakob Frímann Magnússon gengu í hjónaband 2013. Hér eru þær með dæturnar Jarúnu Júlíu og Katrínu Borg.

Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.

Jakob Frímann Magnússon gekk að eiga unnustu sína, Birnu Rún Gísladóttur viðskiptafræðing, í maí árið 2013 í Hörpu. Nánustu fjölskyldu og vinum var boðið til mikillar veislu í tónlistarhúsinu og var gleðin við völd. Birna Rún og Jakob Frímann áttu bæði afmæli á brúðkaupsdaginn. Hann varð sextugur og hún fertug. Birna Rún klæddist skósíðum gullkjól í tilefni dagsins og var í gullskóm við en Jakob Frímann var í vínrauðum jakkafötum. Kjóllinn er frá ELLU.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab