Kærður fyrir fjárdrátt úr foreldrafélagi
Foreldrafélag Foldaskóla í Grafarvogi hefur kært fyrrverandi gjaldkera félagsins til lögreglu vegna gruns um fjárdrátt.
Frá þessu greinir RÚV en þar segir að foreldrum hafi verið tilkynnt um málið í tölvupósti.
Í póstinum sagði að frávik hefðu komið í ljós við yfirferð á bókhaldi og fjármálum félagsins. Þau megi rekja til áranna 2024 til 2025, þegar fyrrverandi gjaldkeri sá um fjármuni þess.
Gjaldkerinn samstarfsfús
„Þetta er leiðindamál og stjórnin er að vinna í þessu,“ segir Helgi Þór Guðmundsson, formaður félagsins, í samtali við RÚV.
Talið er að rúmar þrjár milljónir hafi verið millifærðar úr sjóðum félagsins inn á bankareikning gjaldkerans.
Í póstinum segir að gjaldkerinn hafi verið samstarfsfús og þegar greitt tæpar tvær milljónir til baka. Þá hafi hann lýst yfir vilja til að greiða þá einu milljón sem upp á vantar.
Fjárkröfu haldið uppi
Stjórnin segir að fjárkröfu á hendur viðkomandi verði samt sem áður haldið uppi vegna eftirstöðvanna, auk vaxta og kostnaðar.
Að sögn stjórnarinnar kom ekkert annað fram í yfirferðinni sem benti til þess að aðrir stjórnarmenn, hvorki núverandi né fyrrverandi, hefðu átt aðild að brotunum eða hefðu haft vitneskju um þau.
Fjármunir félagsins eru alla jafna notaðir í verkefni og viðburði í þágu nemenda í Foldaskóla.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗