Setja mikla pressu á Alfreð Gíslason
Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands í handbolta, telur að Þýskaland undir stjórn Alfreðs Gíslasonar geti orðið heimsmeistari karla á heimavelli í janúar. Hugarfarið muni þó ráða úrslitum.
„Ég held að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af hæfileikunum. Það sem mun ráða mestu er hugarfar liðsins,“ sagði Kretzschmar á kynningu streymisveitunnar Dyn í Berlín.
Hann segir leikmenn þurfa að þora að stefna á titilinn og sýna að þeir trúi á þann möguleika. Náist jafnframt sterk tengsl við áhorfendur geti Þjóðverjar farið alla leið.
Heiner Brand, sem þjálfaði Þjóðverja þegar þeir urðu heimsmeistarar á heimavelli árið 2007, tekur undir bjartsýnina.
„Við höfum ekki haft jafn mikla möguleika með landsliðinu í 50 ár. Þetta er besta kynslóðin í áratugi,“ segir Brand í bókinni Generation Gentlemen eftir Ron Ulrich. Hann telur Þjóðverja jafnframt hafa meiri skotkraft fyrir utan en nokkurt annað landslið, þar á meðal Dani.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗