Visa og Mastercard urðu fyrir netárás

Undanfarna viku urðu truflanir á tölvukerfum JPMorgan Chase, United Airlines og jafnvel Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna (NSA). mbl.is/​Hari

Undirverktaki bandaríska bankans JP Morgan Chase og greiðslufyrirtækjanna Visa og Mastercard varð fyrir netárás í dag þar sem tölvuþrjótar komust yfir gögn um viðskiptavini fyrirtækjanna þriggja.

Frá þessu greindu fyrirtækin nú síðdegis og lögðu áherslu á að engum fjárhagsupplýsingum hefði verið stolið.

Nöfnum og netföngum hugsanlega stolið

„Okkur hefur borist vitneskja um að þriðju aðilar sem veita fyrirtækinu þjónustu hafi orðið fyrir netárás,“ skrifaði JPMorgan Chase á samfélagsmiðilinn X.

Í færslunni gaf bankinn ekki upp hvaða fyrirtæki hefði orðið fyrir árásinni.

„Miðað við rannsókn okkar til þessa teljum við að tölvuþrjótarnir hafi komist yfir tiltekin markaðsgögn í vörslu þessara aðila, sem kunna að innihalda nöfn og netföng sumra viðskiptavina.“

Undanfarna viku urðu truflanir á tölvukerfum JPMorgan Chase, United Airlines og jafnvel Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna (NSA).

Tölvuþrjótahópur lýsir sig ábyrgan

Tölvuþrjótahópur sem kallar sig n0n hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni gegn undirverktaka bankans og birt skjöl sem eiga að styðja fullyrðingar hans, að sögn netöryggisfyrirtækisins SOCRadar.

Að sögn fyrirtækisins á hópurinn rætur að rekja til Rússlands og kom fram á sjónarsviðið í september. Hann segist hafa brotist inn í tölvukerfi nærri 200 fyrirtækja um allan heim.

Greiðslufyrirtækin Mastercard og Visa tóku fram að engum greiðslugögnum eða kortaupplýsingum hefði verið stolið.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab