Grunaður um að hafa drepið vinkonu sína og fimm naggrísi - „Hún er í frystinum“

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 22:00

George laug því að Delia væri í Wales og í Danmörku.

Breskur maður á sjötugsaldri er grunaður um að myrða vinkonu sína, búta niður og fela lík hennar. Einnig er hann grunaður um að drepa fimm naggrísina hennar. Lík konunnar fannst í frystikistu á heimili hans.

Breska blaðið The Mirror greinir frá þessu.

George Gordon, 65 ára gamall maður frá Liverpool, er sakaður um að hafa myrt vinkonu sína, 62 ára konu að nafni Delia McInerney. Delia er talin hafa verið myrt í apríl árið 2023 skömmu áður en hún hafði ætlað að flytja til Portúgal og hefja nýtt líf þar. Lík hennar fannst hins vegar ekki fyrr en í janúar á þessu ári.

Allt í rusli og dauðir naggrísir

Lögreglan í Liverpool vitjaði Deliu á heimili hennar þann 8. janúar eftir að DWP, atvinnu- og lífeyrisstofnunin, hafði mistekist að hafa uppi á henni varðandi bætur hennar.

Enginn svaraði en lögreglan komst inn í húsið eftir að hafa fengið lykil hjá nágranna. Í íbúðinni voru staflar af kössum, bókum og pappírum alls staðar. Á efri hæðinni voru dýnur á hlið upp við veggi og allt í rusli. Augljóst var að enginn hafði verið í íbúðinni lengi.

Í eldhúsinu voru margir pokar og dýrabúr á gólfinu. Lögreglumenn litu inn í búrin og sáu þar dauð nagdýr, reyndust það vera þrír naggrísir Deliu. En Deliu sjálfa var hvergi að finna.

Í tveimur bútum

Fóru þeir þá heim til vinar hennar George Gordon, því vitað var að hann hefði átt við bankareikninga hennar. George hafði áður sagt að Delia væri í Cornwall í suðvesturhluta Englands, í Wales eða að hún væri í Danmörku. En þegar lögreglumennirnir bönkuðu upp á sagði hann aðra sögu.

„Hún er í frystinum,“ sagði George blákalt.

Íbúðin hans var einnig í rusli og alls kyns lífrænir vessar. George var handtekinn og leiddur út í lögreglubíl. Frásögn hans reyndist rétt. Í frystinum fundu lögreglumennirnir lík Deliu McInerney, bútað í tvo hluta. Einnig tvo nagrrísi til viðbótar við þá sem höfðu fundist í hennar íbúð.

„Ég veit að ég er að fara í fangelsi eftir þetta,“ sagði George.

Neitar sök

Réttarhöldin eru nú hafin yfir George Gordon sem er grunaður um morð og slæma meðferð á dýrum. En alls fundust fimm dauðir naggrísir í íbúð hennar.

George neitar því að hafa drepið Deliu og naggrísina. Hann viðurkennir hins vegar að hafa leynt dauða hennar og falið líkið. En eins og til dæmis símreikningar hennar sýna hafði hún verið látin í langan tíma.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab