Sýknaði mann sem hlaut 156 milljóna króna sekt
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt hann í tólf mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og gert honum að greiða rúmlega 156 milljónir króna í sekt. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Landsréttur sýknaði í dag mann af ákæru um meiri háttar brot gegn skattalögum.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt hann í tólf mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og gert honum að greiða rúmlega 156 milljónir króna í sekt.
Landsréttur taldi rannsókn málsins verulega ábótavant og ósannað að manninum hefði borið að sjá til þess að félagið stæði skil á gjöldunum.
Ákæran á hendur manninum laut að vanskilum á rúmlega 45 milljónum króna í virðisaukaskatt og tæplega 52 milljónum króna í staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna.
Vanskilin námu samtals tæplega 97 milljónum króna og vörðuðu tímabil frá mars 2020 til ágúst 2021. Fjárhæðirnar voru óumdeildar.
Öll gjöldin á eindaga eftir afskráningu
Maðurinn var skráður framkvæmdastjóri félagsins til 15. júní 2020. Eftir það var enginn skráður framkvæmdastjóri hjá félaginu. Maðurinn hélt þó áfram störfum, hafði prókúruumboð og kom áfram fram sem framkvæmdastjóri.
Héraðsdómur taldi að maðurinn hefði í reynd gegnt starfi framkvæmdastjóra allt tímabilið sem ákæran tók til og tekið virkan þátt í fjármálastjórn félagsins. Dómurinn byggði sakfellinguna á því að honum hefði sem framkvæmdastjóra borið að sjá til þess að félagið stæði skil á gjöldunum.
Landsréttur benti á að eindagi allra greiðslnanna hefði verið eftir að maðurinn var afskráður sem framkvæmdastjóri. Það gilti einnig um staðgreiðslu vegna mars, apríl og maí 2020, en skilum á henni hafði verið frestað til 15. janúar 2021 samkvæmt úrræði stjórnvalda vegna heimsfaraldursins.
Stjórn félagsins fór ein með lögbundna stjórn þess eftir afskráninguna. Landsréttur taldi að til að sakfella manninn sem daglegan stjórnanda þyrfti ákæruvaldið að sýna fram á að hann hefði í reynd borið ábyrgð á skattskilunum og tekið ákvarðanir um hvaða skuldir félagsins fengju forgang.
Rannsóknin „verulega ábótavant“
Málið kom til rannsóknar árið 2022 eftir að skiptastjóri þrotabús félagsins vakti athygli héraðssaksóknara á mögulegum brotum. Við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra vísaði maðurinn á fjármálastjóra félagsins um ábyrgð á greiðslunum. Fjármálastjórinn sagði manninn hafa tekið ákvarðanir um allar meiri háttar greiðslur.
Landsréttur taldi að rannsaka hefði átt ábyrgð allra sem komu að stjórn félagsins. Engar skýrslur voru teknar af stjórnarmönnum við rannsóknina, ekki var kallað eftir fundargerðum stjórnarfunda og tölvupóstsamskipti stjórnar og starfsmanna voru ekki skoðuð sérstaklega. Fyrrverandi stjórnarformaður sagði fyrir héraðsdómi að hann hefði undir höndum gögn sem hefðu getað varpað ljósi á verkaskiptingu stjórnendanna.
Fjármálastjórinn var einnig ákærður en var sýknaður í héraði. Ákæruvaldið undi þeirri niðurstöðu en krafðist þyngri refsingar yfir manninum fyrir Landsrétti. Fjármálastjórinn kom þar fyrir sem vitni. Landsréttur taldi framburð hans um hver hefði borið ábyrgð á greiðslunum hvorki fá stoð í öðrum sönnunargögnum né framburði vitna.
Landsréttur hafnaði frávísunarkröfu mannsins og sýknaði hann á þeim grundvelli að ábyrgð hans á skattskilunum hefði ekki verið sönnuð. Ríkissjóður greiðir sakarkostnaðinn sem manninum var gert að greiða í héraði og allan áfrýjunarkostnað, þar á meðal rúmar 2,1 milljón króna í málsvarnarlaun fyrir Landsrétti.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗