Seldu 13.000 bækur á 10 dögum
Nýstofnuð bókaútgáfa, Ævintýri útgáfa, seldi allt upplag nýrrar smásagnaseríu um íslensku jólasveinana á tíu dögum, samtals 13 þúsund bækur.
Sölvi Víðisson, annar stofnenda, segir í samtali við Morgunblaðið að bækurnar hafi farið í sölu í byrjun nóvember og síðustu eintökin í vefversluninni hafi selst á degi einhleypra, 11. nóvember sl.
Spurður um galdurinn segir Sölvi hann vera sambland af því að bækurnar séu skemmtilegar, á mjög sanngjörnu verði og svo hafi útgáfan auglýst grimmt á Facebook og Instagram.
„Okkur langaði að semja stuttar og skemmtilegar sögur sem henta í skóinn,“ segir Sölvi.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗