Óvænt staðreynd um skyldukynlíf og raunveruleg ástæða þess að pör stunda það

Ný rannsókn sem birt var í tímaritinu Evolutionary Psychology leitast við að finna þróunarfræðilega skýringu á skyldukynlífi,  það er að segja þegar pör stunda kynlíf af skyldurækni fremur en löngun.

Fyrri rannsóknir hafa bent á fjölmarga þætti sem stuðla að skyldukynlífi, svo sem að viðhalda sambandinu, hlífa tilfinningum maka, draga úr árekstrum eða koma í veg fyrir að maki yfirgefi mann.

Þessi nýjasta rannsókn miðaði hins vegar að því að leiða í ljós hver þróunarfræðilegur ávinningurinn af slíku skyldukynlífi gæti verið.

„Hvaða kosti varðandi æxlun gæti þessi hegðun hafa veitt í gegnum þróunarsögu okkar? Mig langaði að vita hvort kynlíf sem stundað er af skyldurækni þjóni einhverjum grundvallartilgangi, og ef svo er, hver sá tilgangur er,“ útskýrði F. Sid Dougan, aðalhöfundur rannsóknarinnar.

Mynd: Unsplash.com

Rannsóknin náði til 252 þátttakenda, 176 kvenna og 76 karla, á aldrinum 18 til 24 ára. Flestir þátttakendur skilgreindu sig sem gagnkynhneigða og lengd sambanda þeirra var allt frá því að vera nýhafið upp í 84 mánuði eða sjö ár.

Þátttakendur svöruðu könnun sem innihélt spurningar um „aldur, kyn, kynþátt/þjóðerni, menntun, kynhneigð, núverandi sambandsstöðu, fjölda ástar- og kynlífsfélaga og núverandi kynlífsvirkni (leggöng, endaþarms- eða munnmök).“

Þátttakendur svöruðu einnig spurningalista sem kannaði hversu oft þeir myndu stunda skyldukynlíf til að vernda samband sitt. Rannsakendur mátu „skynjaðar líkur á ótryggð maka, misræmi í gildum maka og taugaveiklun“ til að spá fyrir um líkur á skyldukynlífi.

Niðurstöður sýndu að karlar og konur stunduðu jafnt skyldukynlíf þegar þau óttuðust að maki þeirra væri ótrúr. Reyndar tengdist ótti við ótryggð hærri tíðni skyldukynlífs en nokkur annar þáttur.

Þetta er í samræmi við fyrri niðurstöður sem sýndu að rótgróin pör sýna meiri hegðun sem kallast makahaldshegðun (e. Mate retention) þegar þau skynja meiri hættu á ótryggð eða á tímabilum þar sem hætta er aukin, svo sem erfiðleikatímabil eða langvarandi aðskilnaður.

Mynd: Unsplash.com

Rannsakendur telja að þegar einhvern grunar að maki þeirra muni leita annað og halda framhjá, geti kynlíf af skyldu í raun verið eðlislæg, þróuð hegðun sem ætlað er að koma í veg fyrir að viðkomandi yfirgefi mann. Rannsóknin leiddi í ljós að lengd sambands hafði engin áhrif á tíðni skyldukynlífs fyrir hvort kynið.

Rannsakendur viðurkenna takmarkanir rannsóknarinnar, þar á meðal að gögnin byggja á sjálfsskýrslum þátttakenda, úrtakið er lítið og þátttakendur eru að mestu ungir og á fyrstu stigum sambands síns.

Að lokum lögðu höfundar rannsóknarinnar áherslu á mikilvægi þess að skoða kynlíf sem byggir á skyldurækni út frá þróunarfræðilegu sjónarhorni:

„Þessi rannsókn varpar ljósi á hvernig hegðun, sem virðist sprottin af skyldurækni, gæti í raun verið stefnumarkandi viðbragð við skynjaðri hættu á að missa maka. Þetta veitir grunn fyrir frekari rannsóknir á hlutverki kynlífs við að viðhalda samböndum.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab