United gefst ekki upp og ætlar í hart við JJ Gabriel

Manchester United ætlar ekki að gefast upp í baráttunni um JJ Gabriel, 16 ára gamlan efnilegan sóknarmann, þrátt fyrir að hann sé mættur á æfingasvæði Real Madrid.

Samkvæmt The Athletic heimsótti Gabriel æfingasvæði spænska stórliðsins í Valdebebas og er búist við að félagaskipti hans verði frágengin í næstu viku.

Gabriel kvaddi United með myndbandi á samfélagsmiðlum í gær en félagið segir hann enn vera skráðan leikmann sinn.

Ungstirnið er sagt hafa óskað eftir því að yfirgefa United í september eftir að hafa ekki fengið tækifæri með aðalliðinu í deildabikarleik gegn Brighton.

Gabriel er talinn einn efnilegasti leikmaðurinn sem komið hefur upp úr akademíu United undanfarin ár.

Hann er með kýpverskt vegabréf í gegnum móður sína, sem gæti auðveldað félagaskiptin samkvæmt reglum FIFA um unga leikmenn.

United gæti fengið sex stafa upphæð í bætur en það er talið langt undir raunverulegu verðmæti leikmannsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab