Landsliðsmennirnir sterkir í Meistaradeildinni
Orri Freyr Þorkelsson skoraði fimm mörk þegar portúgalska liðið Sporting vann rúmenska liðið Dinamo Búkarest, 36:27, á heimavelli í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld.
Orri nýtti fimm af sex skotum sínum og var næstmarkahæstur hjá Sporting ásamt Martim Costa. Francisco Costa var markahæstur með ellefu mörk og gaf sjö stoðsendingar.
Sporting er í öðru sæti annars milliriðils með sex stig, líkt og Barcelona og Magdeburg. Barcelona er efst á markatölu en Magdeburg í þriðja sæti.
Reynir skæður en tapaði fyrir Bjarka
Reynir Þór Stefánsson skoraði einnig fimm mörk þegar þýska liðið Melsungen tapaði fyrir Bjarka Má Elíssyni og félögum í franska liðinu París Saint-Germain, 35:33, á heimavelli. Bjarki skoraði eitt mark fyrir gestina.
Reynir nýtti fimm af átta skotum sínum og gaf þrjár stoðsendingar. Aaron Mensing og Johannes Golla voru markahæstir hjá Melsungen með átta mörk hvor.
PSG er með fimm stig í fyrsta milliriðli en Melsungen með tvö. Franska liðið tók þrjú stig með sér úr riðlakeppninni en þýska liðið tvö.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗