Lenti í klóm svikara: „Skömm og óvissa“

Hólmfríður Magnúsdóttir í baráttunni við Solveig Gulbrandsen.

Hólmfríður Magnúsdóttir í baráttunni við Solveig Gulbrandsen. Ljósmynd/Guðmundur Svansson

Solveig Gulbrandsen, fyrrverandi landsliðskona Noregs í knattspyrnu, segir að skömm og óvissa hafi verið verstu afleiðingar þess að verða fyrir svikum og millifæra töluverða fjárhæð.

„Þeir sögðu að persónuupplýsingum mínum hefði verið stolið og að einhver væri að taka bankalán í mínu nafni,“ sagði hún í viðtali við Dagbladet.

Svikararnir vörðu hálfum degi í að vinna traust hennar og ræddi hún við nokkra þeirra. Sambandið rofnaði eftir að hún millifærði peningana.

„Þegar ég rek allt ferlið núna hljómar það algjörlega fáránlega,“ sagði Gulbrandsen. Hún hvatti aðra til að ræða aðferðir svikara við fjölskyldu og vini.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab