Ekkert fær KR stöðvað – Álftanes vann meistarana

Lars Erik Bragason sækir að Jarrett Bryant í kvöld.

KR er enn með fullt hús stiga eftir sjö umferðir í úrvalsdeild karla í körfubolta. KR lagði ÍR, 88:76, í Breiðholti í kvöld. Álftanes vann Íslandsmeistara Grindavíkur og Höttur kom á óvart með sigri á Val.

KR er efst með 14 stig, tveimur stigum á undan Álftanesi. Tindastóll og Valur eru með tíu stig en Tindastóll á leik til góða gegn Keflavík annað kvöld.

Roberts Berzins var stigahæstur hjá KR með átján stig. Linards Jaunzems skoraði sautján stig, tók tíu fráköst og gaf sex stoðsendingar. Tómas Orri Hjálmarsson skoraði tuttugu stig og tók ellefu fráköst fyrir ÍR en Montez Mathis bætti við fimmtán stigum.

Meistaraefnin unnu meistarana

Álftanes vann Grindavík, 104:97, á heimavelli og batt þar með enda á fjögurra leikja sigurgöngu meistaranna. Dedrick Basile fór fyrir heimamönnum með 32 stig og tíu stoðsendingar. Martins Laksa skoraði 23 stig og tók ellefu fráköst.

DeAndre Kane var stigahæstur Grindvíkinga með 26 stig og Jeremy Pargo skoraði 23 stig og gaf átta stoðsendingar. Grindavík er áfram með átta stig eftir sjö leiki.

Óvænt fyrir austan

Höttur vann nauman sigur á Val, 94:92, á Egilsstöðum. Marquis Jackson skoraði 27 stig fyrir Hött og Obadiah Nelson Trotter kom næstur með 21 stig.

Dwayne Lautier-Ogunleye skoraði 28 stig og gaf sex stoðsendingar fyrir Val en Atli Freyr Haraldsson Katrínarson skoraði 22 stig. Valsmenn hafa nú tapað tveimur leikjum í röð en Höttur er kominn með sex stig.

Sannfærandi Stjörnumenn

Stjarnan vann Ármann, 116:95, á útivelli. Bjarni Guðmann Jónsson og Hilmar Smári Henningsson skoruðu 26 stig hvor fyrir Garðabæjarliðið. Hilmar tók einnig átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Kinyon Hodges skoraði 27 stig fyrir Ármann og Adam Johansson skoraði 22 stig og tók tíu fráköst. Ármenningar bíða enn eftir fyrsta sigrinum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab