Of fljótt gripið til niðurrifs stúkunnar
Arnhildur segist hafa í verkum sínum lagt áherslu á að halda í það efni sem fyrir er, endurnýta efni og halda þannig í söguna. Samsett mynd/Orri/Karítas
Arnhildur Pálmadóttir, borgarlistamaður Reykjavíkur og arkitekt, segir að of fljótt hafi verið ákveðið að ráðast í niðurrif á stúkunni við Laugardalslaug.
Í september bauðst hún til þess, ásamt sérfræðingum sínum, að kanna hvort hægt væri að tryggja öryggi stúkunnar með svokölluðu „exoskeleton“, utanáliggjandi stoðkerfi sem tæki yfir burðinn.
Búið að dæma stúkuna ónýta
„Ég var búin að fylgjast með því að það var smám saman verið að dæma stúkuna ónýta,“ segir Arnhildur í samtali við mbl.is.
Hún segist hafa í verkum sínum lagt áherslu á að halda í það efni sem fyrir er, endurnýta efni og halda þannig í söguna.
„Því fólki finnst gott að vera í kringum byggingar sem eru ekki allar frá sama tíma og stúkan er mjög sérstök,“ segir hún.
Upprunaleg teikning af járnabindingu í stoðum stúkunnar. Arnhildur segir mikil verðmæti í efninu sem færi í urðun ef stúkan yrði rifin. Teikning/Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
Þarf að vanda til verka
Þegar Arnhildur sá í hvað stefndi hóf hún forvinnu ásamt verkfræðingum og öðrum sérfræðingum sem hún starfar með.
„Við skoðuðum þetta saman, án þess að gera það formlega, og sáum að það er alveg hægt að skoða þetta á annan hátt.“
Arnhildur segir mestu hættuna stafa af súlunum sem halda uppi skyggni stúkunnar. Ef ein þeirra myndi brotna gæti það sett af stað keðjuáhrif með þeim afleiðingum að stúkan hryndi.
Stoðkerfið myndi taka þá hættu af og sjá um burðinn. Þegar það væri komið upp mætti gera við steypuna, sem er misjafnlega illa farin og misjafnlega hættuleg eftir því hvar hún er.
Hún leggur áherslu á að halda í upprunalegt útlit stúkunnar.
„Þetta má ekki vera groddalegt, það þarf að vanda til verka.“
Skýringarmynd af suðurhlið stúkunnar. Rauðu línurnar sýna hugmyndina um utanáliggjandi stoðkerfi sem tæki yfir burðinn. Myndin sýnir ekki hönnun. Teikning/s.ap arkitektar
Stúkan vel hönnuð
Arnhildur segir stúkuna í grunninn vel hannaða verkfræðilega. Hún bendir á að gert sé við byggingar með svipaðar skemmdir annars staðar og nefnir Stadio Flaminio í Róm sem dæmi.
Hún segir hugmyndina hafa verið að ráðast fyrst í þær aðgerðir sem að framan eru nefndar og ákveða svo hvað gera ætti við stúkuna.
„Það hafa verið gerðar mjög margar tillögur um enn betri nýtingu sem gæti þá komið í framhaldinu ef það væri búið að skoða kostnaðinn við þessar fyrstu aðgerðir.“
Tölvumynd af fyrirhuguðum endurbótum á Stadio Flaminio í Róm. Þar á að reisa nýtt stoðkerfi utan um gamla leikvanginn í stað þess að rífa hann. Ljósmynd/Aðsend
Borgin óskaði ekki eftir frekari skoðun
Borgin óskaði ekki eftir því að tillagan yrði skoðuð áfram en tók þó vel í hana, að sögn Arnhildar.
Hún kveðst ekki vita hvers vegna ákveðið var að skoða tillöguna ekki nánar.
„Við vorum ekki búin að senda inn formlega útreikninga eða kostnaðaráætlun. Við ætluðum að fá leyfi til að gera það svo við þyrftum ekki að vinna þá vinnu á eigin kostnað.“
Arnhildur telur að verkefnið hafi verið komið vel á veg og að því sé einfaldlega haldið áfram.
„Það er búið að fjárfesta mikið í þessum skýrslum, en mér fannst vanta þennan vinkil: hvað ef við reynum að halda í hana?“ segir hún.
„Þess vegna datt mér í hug að vekja athygli á þessu núna því þetta eru svona síðustu forvöð. Nú er búið að setja í gang niðurrifsáætlanir.“
Arnhildur tekur skýrt fram að hún geri ekki lítið úr þeirri vinnu sem unnin hefur verið við að meta ástand stúkunnar. Hún hefur starfað lengi í mannvirkjagerð og segir slíkar ákvarðanir oft snúast fyrst og fremst um kostnað og fyrirhöfn.
„Við erum allt of fljót að ákveða. Það er oft eiginlega búið að ákveða fyrir fram að það sé of dýrt og of mikið vesen að varðveita og að ódýrara og einfaldara sé að rífa,“ segir hún.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



