Óttast um líf 50 til 100 manns

Börn í Yenne skoða flakið sem rak á land í gær. Allt að 100 manns eru taldir hafa verið um borð þótt sumar heimildir segi 50. AFP/Patrick Meinhardt

Leitar- og björgunaraðgerðir standa nú yfir úti fyrir ströndum Vestur-Afríkuríkisins Senegal eftir að flóttamannabát, sem talið er að flutt hafi 50 til 100 manns, rak á land skammt frá þorpinu Yenne, sunnan við höfuðborgina Dakar, aðfaranótt gærdagsins, miðvikudags.

Fundust persónulegir munir flóttafólksins í illa útleiknum bátnum og hófust aðgerðir á vegum yfirvalda í kjölfarið sem hingað til hafa skilað því, að sögn senegalska dagblaðsins Le Soleil og samtakanna Sjóndeildarhringir án landamæra, Horizons Sans Frontières, að lík fjögurra flóttamanna hafa fundist á svæðinu milli Yenne og nágrannabæjarins Sendou.

Þetta hafa þessir aðilar staðfest við Reuters-fréttastofuna.

Oumar Sow, fulltrúi þorpshöfðingjans í Yenne, segir bátinn hafa farist um klukkan 02 að staðartíma aðfaranótt gærdagsins og hafi neyðaróp fólksins um borð heyrst upp á land. Að minnsta kosti einn komst lífs af, svo vitað sé, og var þegar handtekinn. Greindi hann lögreglu frá því við yfirheyrslur að um hundrað manns hefðu verið um borð í bátnum, þar af fimm konur, en frá þessu greinir AFP-fréttastofan.

Skilríki og skólaskírteini í flakinu

Embættismaður á staðnum hefur hins vegar greint Reuters frá því að 50 manns hafi verið um borð í bátnum sem hafi steytt á skeri þegar flóttafólkið var að flytja sig yfir í hann úr litlum fiskibátum.

Lögregla fann skilríki, nokkra farsíma og persónulega muni í flakinu, þar á meðal skólaskírteini.

Kafarar frá slökkviliði Senegals leita við ströndina. Fjögur lík hafa fundist og einn eftirlifandi sem var þegar handtekinn. AFP/Patrick Meinhardt

Diomaye Faye forseti Senegals lýsti yfir áhyggjum af aukinni tíðni ferða flóttafólks frá Afríku á ríkisstjórnarfundi í gær, en ekki eru tvær vikur liðnar síðan skipsskaði undan strönd bæjarins Thieppe í Norðvestur-Senegal kostaði að minnsta kosti 39 manns lífið í einu mannskæðasta flóttamannaslysi í sögu Senegals.

Látnir eða horfnir

Mörg þúsund manns frá Vestur-Afríku hafa látist eða horfið síðustu ár á flótta frá átökum, einræðisstjórnum eða fátækt og greindi Flóttamannaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna, IOM, frá því í október að hún hefði skráð 454 dauðsföll og mannshvörf undan ströndum Vestur-Afríku það sem af er árinu.

Sló IOM þó þann varnagla að tölurnar væru líkast til vanmat þar sem margir bátar hyrfu án þess að nokkur komist lífs af eða nokkur ummerki um þá finnist.

BBC

Reuters

CBC

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab