Carlsen vísað úr keppni?
Íþróttir | mbl | 19.11.2026 | 20:30
Magnus Carlsen gæti verið vísað úr Total Chess-mótinu í Búdapest eftir að hann ákvað að sleppa tveimur skákum gegn Vladislav Artemjev.
Norðmaðurinn var með 3:1-forystu eftir hraðskákirnar en sagðist vilja spara orkuna fyrir kappskákina á fimmtudag, þótt viðureignin væri enn óráðin.
„Ég vil frekar vera betur úthvíldur fyrir kappskákina,“ sagði Carlsen við TV2. „Hvort ég eigi mikla möguleika eða ekki skiptir mig engu máli.“
Miðilinn greinir frá því að forráðamenn keppninnar séu allt annað en sáttir við þann norska.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗