Óvænt vending í morðmáli breska hjúkrunarfræðingsins
Lucy Letby, sem hefur verið lýst sem afkastamesta raðmorðingja barna í nútímasögu Bretlands, afplánar 15 lífstíðardóma án möguleika á reynslulausn. Hún hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. AFP/Lögreglan í Cheshire
Mark McDonald, lögmaður breska hjúkrunarfræðingsins Lucy Letby, krefst þess að áfrýjunardómstóll endurskoði án tafar alla dóma yfir henni. Ástæðan er sú að nú hefur komið í ljós að lækninum Peter Hindmarsh, einu af lykilvitnum ákæruvaldsins, var bannað að sinna sjúklingum á meðan réttarhöldin stóðu yfir. Letby var sakfelld fyrir að myrða sjö nýbura og reyna að myrða sjö til viðbótar
Sjúkrahúsið í London þar sem Hindmarsh starfaði taldi ekki óhætt að hann sinnti börnum, jafnvel undir nánu eftirliti. Hvorki verjendur Letby né kviðdómurinn fengu að vita af banninu.
Hindmarsh er sérfræðingur í hormónasjúkdómum barna. Hann bar vitni um að blóðrannsóknir og sjúkraskrár bentu til þess að tveimur nýburum hefði verið byrlað insúlín. Letby var sakfelld fyrir að hafa reynt að myrða bæði börnin.
Breska blaðið The Guardian greindi frá banninu í gær og birti í dag viðbrögð lögmanns Letby.
Lucy Letby starfaði á nýburadeild Countess of Chester-sjúkrahússins á Englandi, þar sem hún var síðar sakfelld fyrir morð og morðtilraunir á nýburum. AFP
Ráðlagði fjölskyldum að hætta insúlíngjöf
Í mars 2023 skrifaði Tim Hodgson, einn af yfirlæknum University College London Hospitals, breska læknaráðinu og greindi frá því að sjúkrahúsið hefði bannað Hindmarsh að sinna sjúklingum. Þá voru tæpar þrjár vikur frá því að Hindmarsh bar síðast vitni í málinu. Í bréfinu nefndi Hodgson meðal annars tvö tilvik þar sem Hindmarsh hefði ráðlagt fjölskyldum að hætta að gefa börnum sínum insúlín heima.
Læknaráðið fór þá fram á að Hindmarsh yrði sviptur lækningaleyfi tímabundið. Í apríl hafnaði úrskurðarnefnd um starfsréttindi lækna beiðninni en setti það skilyrði að hann sinnti sjúklingum aðeins undir beinu eftirliti. Bann sjúkrahússins gilti áfram.
Verjendur vissu af rannsókn læknaráðsins
Læknaráðið hafði hafið rannsókn á störfum Hindmarsh áður en sjúkrahúsið setti bannið. Hindmarsh sagði lögreglu frá rannsókninni í desember 2022 og í febrúar 2023 greindi ákæruvaldið verjendum Letby frá henni. Kviðdómurinn fékk aldrei að vita af rannsókninni.
Ákæruvaldið segist hvorki hafa fengið upplýsingar um bann sjúkrahússins í mars né úrskurð nefndarinnar í apríl. Fulltrúi Hindmarsh vildi ekki svara því hvort læknirinn hefði látið lögreglu vita af þessum ákvörðunum. Lögreglan vildi heldur ekki tjá sig um málið.
McDonald segir að upplýsingar um bannið hefðu getað skipt miklu fyrir vörn Letby. Hann bendir á að saksóknari hafi lagt sérstaka áherslu á þekkingu Hindmarsh á insúlíni þegar hann kynnti lækninn fyrir kviðdómnum.
Gísli lagði mat á minnismiða Letby
McDonald hefur þegar óskað eftir því að breska endurupptökunefndin, Criminal Cases Review Commission, vísi máli Letby aftur til áfrýjunardómstólsins. Í tengslum við beiðnina var leitað til Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings, sem hefur um árabil rannsakað falskar játningar.
Gísli skoðaði handskrifaða minnismiða Letby sem saksóknari lagði mikla áherslu á við réttarhöldin. Að mati Gísla var ekki hægt að líta á skrif hennar sem játningu á morðunum.
„Hún hafði verið að skrifa þessar nótur vegna þess að henni leið illa og þar hafði hún uppi ýmsar sjálfsásakanir,“ sagði Gísli í samtali við mbl.is í september 2025.
Fjöldi lækna og vísindamanna hefur einnig lagt fram sérfræðiálit til stuðnings beiðninni. Þeir draga meðal annars í efa þá niðurstöðu Hindmarsh að nýburunum tveimur hafi verið byrlað insúlín.
Afplánar 15 lífstíðardóma
Letby var sakfelld fyrir að myrða sjö nýbura og reyna að myrða sjö til viðbótar á nýburadeild Countess of Chester-sjúkrahússins á Englandi. Hún afplánar 15 lífstíðardóma án möguleika á reynslulausn og hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu. Áfrýjunardómstóll hefur áður hafnað beiðnum hennar um áfrýjunarleyfi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
