Fram síðasta liðið í átta liða úrslit
Fram varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta með sigri á Gróttu, 29:21, á Seltjarnarnesi.
Framarar lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik og voru átta mörkum yfir í leikhléi, 17:9.
Sóldís Rós Ragnarsdóttir var markahæst hjá Fram með níu mörk. Lena Margrét Valdimarsdóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir skoruðu sex mörk hvor en Katrín nýtti öll skot sín.
Ethel Gyða Bjarnesen varði fjórtán skot í marki Fram og var með 47 prósenta markvörslu. Arna Sif Jónsdóttir varði þrjú skot.
Katrín Scheving Thorsteinsson skoraði tíu mörk fyrir Gróttu, þar af sex úr vítaköstum. Dagmar Guðrún Pálsdóttir kom næst með þrjú mörk.
Andrea Gunnlaugsdóttir varði ellefu skot og Anna Karólína Ingadóttir þrjú í marki heimaliðsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗