HSÍ kynnir nýtt app
Handknattleikssamband Íslands hefur gefið út app þar sem notendur geta fylgst með leikjum, úrslitum og tölfræði í íslenskum handbolta. Appið er aðgengilegt fyrir bæði Apple- og Android-notendur.
Í tilkynningu frá HSÍ kemur fram að þar sé að finna mótaskrá og upplýsingar um leiki í meistaraflokki og yngri flokkum. Notendur geta séð úrslit og stöðu í rauntíma, skoðað tölfræði liða og leikmanna og horft á hápunkta úr leikjum.
Hægt er að velja uppáhaldsfélag og ákveðinn flokk innan þess til að fylgjast með næstu leikjum og stöðu liðsins. Foreldrar geta þannig fylgst með flokkum barna sinna og félög sent tilkynningar beint til fylgjenda. Fréttir frá íslenskum fjölmiðlum birtast einnig í appinu.
Þá er þar að finna fræðsluefni, styrktaræfingar fyrir mismunandi aldurshópa og æfingaprógrömm fyrir leikmenn og þjálfara, auk upplýsinga um aðildarfélög HSÍ og tengiliði þeirra.
Appið má sækja í App Store og Google Play. Kynningarmyndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗