Gæti fengið tæpar 80 milljónir í laun á viku
Real Madrid undirbýr nýjan risasamning fyrir Jude Bellingham, sem gæti tvöfaldað laun sín hjá spænska stórliðinu.
Bellingham, sem er 23 ára, hefur verið lykilmaður hjá Real Madrid síðan hann gekk til liðs við félagið frá Borussia Dortmund sumarið 2023.
Samkvæmt spænska miðlinum Sport vill Real tryggja framtíð Englendingsins með samningi sem yrði svipaður þeim sem Vinicius Junior skrifaði undir í sumar.
Vinicius þénar um 480 þúsund pund á viku og gæti Bellingham fengið sambærileg kjör. Hann er nú sagður vera með um 240 þúsund pund í vikulaun.
Núverandi samningur Bellingham gildir til sumarsins 2029 en Real vill halda honum til lengri tíma.
Bellingham hefur skorað 51 mark í 156 leikjum fyrir félagið og á þessu tímabili hefur hann gert fimm mörk og lagt upp fjögur í 16 leikjum.
Kylian Mbappé er áfram talinn launahæsti leikmaður Real Madrid með um 500 þúsund pund á viku.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗