Trump sofnaði þegar Xi Jinping hélt ræðu – „Falsfréttir!“ segir Hvíta húsið
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 21:00
Enn og aftur sofnar Trump á óviðeigandi tímum. Skjáskot/Youtube
Donald Trump Bandaríkjaforseti gat ekki haldið sér vakandi á fundi APEC ríkja þegar Xi Jinping forseti Kína hélt ræðu. Miklar áhyggjur hafa verið af heilsufari forsetans að undanförnu en hann virðist iðulega sofna á óviðeigandi tímum.
The Daily Beast greinir frá þessu.
Mikið hefur verið fjallað um fund APEC ríkja í kínversku borginni Shenzen, það er samband Asíu og Kyrrahafsríkja. En þar ákváðu Donald Trump Bandaríkjaforseti, Xi Jinping Kínaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti að funda aukalega á fundi sem sumir hafa kallað „nýjan Yalta fund“. Er það vísun í fund Stalíns, Churchill og Roosevelt þar sem þeir „mynduðu nýja heimsskipan“ eftir seinni heimsstyrjöldina.
Sígandi höfuð og lokuð augu
Það sem hefur hins vegar vakið hvað mesta athygli er að myndband náðist af Trump sofandi undir ræðu Xi Jinping á APEC fundinum. Sést hann með hallandi höfuð, lokuð augu og fingurna tvinnaða saman. Svo sést höfuðið á honum síga og þá allt í einu opnar hann augun.
Myndbandið hefur farið víða á netinu og samfélagsmiðlum. Eru sumir hneykslaðir en öðrum kemur þetta ekki á óvart í ljósi þess að Trump hefur margsinnis sofnað á óviðeigandi tímum á undanförnum mánuðum. Meðal annars í útför þingmannsins Lindsay Graham í sumar, en þar sat Trump á fremsta bekk. Einnig í minningarathöfn um hryðjuverkin 11. september árið 2001 í Pentagon.
„Falsfréttir“
Hvíta húsið hefur brugðist við og hafnað því að Trump hafi verið sofandi. Það er samskiptastjórinn Steven Cheung.
„Falsfréttir!“ sagði Cheung í færslu á samfélagsmiðlum. „Trump var að horfa á pappírana fyrir framan hann á meðan ræðumaðurinn talaði. Þið getið séð að augun hans fara klárlega fram og aftur. Þetta er ástæðan fyrir því að fólk hatar fjölmiðla svona mikið. Þeir ljúga stanslaust.“
Merki um heilabilun
Trump er orðinn áttræður að aldri og margir hafa áhyggjur af heilsu hans. Bent hefur verið á að þegar líkamsklukkan bilar geti það verið skýrt merki um heilabilun. En Trump vakir oft heilu næturnar og skrifar ótal færslur á samfélagsmiðla.
Sjá einnig:
JD Vance tjáir sig um óreglulegan svefn Trump – Sofnar í tíma og ótíma
Öldrunarsjúkaþjálfari að nafni Adam Jones segir um Trump að heilinn sé að aftengjast dæmigerðum svefn og vökutíma dags og nætur. Það er vegna þess að sá partur sem stýrir þessu, suprachiasma, sé að rýrna eða brotna niður.
J.D. Vance varaforseti er einn af þeim úr stjórn Trump sem hafa reynt að verja þetta í fjölmiðlum. Sagði hann Trump „vinna allan sólarhringinn.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗