Fá ekki upplýsingar um norsk gagnaver
Nýja gagnaverið á Gromstul í Skien eins og það kemur til með að líta út árið 2026. Bygging þess kostar tæpa 88 milljarða íslenskra króna. Tölvuteikning/Google
„Við vorum kannski dálítið barnaleg í upphafi verkefnisins,“ segir Mads Dahl Gjefsen, yfirrannsakandi hjá NTNU Samfunnsforskning AS, óháðri rannsóknarstofnun í eigu Tækniháskólans í Þrándheimi í Noregi, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK.
Fjallar hann þar um rannsókn stofnunarinnar á gagnaverum í Noregi, sem ekki hafa verið óumdeild upp á síðkastið, en til stóð að reikna út hve stór hluti reikniafls þeirra færi í afþreyingu og hve stór hluti væri samfélaginu gagnlegur.
Norski gagnaveraiðnaðurinn sagði hins vegar þvert nei við að útvega þau gögn sem NTNU Samfunnsforskning bað um rökstuddi með því að þessi nýsprottni iðnaður gæti hvorki né vildi svara því hvað fram færi í gagnaverunum. Sumir leigðu út til annarra á meðan aðrir rækju gagnaverin sjálfir.
Mat stjórnvalda örðugt
„Mikil leynd hvílir jú yfir þessum geira, bæði í Noregi og á alþjóðavísu, og hvað fer fram í gagnaverunum,“ segir Gjefsen og bætir því við að ætlunin hafi verið að rannsaka hvort væntingar um samfélagslega gagnsemi gagnavera stæðust.
Aðspurður kveðst hann hafa á tilfinningunni að örðugt sé fyrir norsk stjórnvöld að meta hvort gagnaverin þar í landi séu notuð við starfsemi sem telst samfélagslega mikilvæg og sú spurning standi opin hvort hægt sé að móta nýja stefnu eða setja nýjar reglugerðir sem krefjist aukins gagnsæis.
Reynir Jóhannesson, framkvæmdastjóri Samtaka norskra gagnavera, sem nýverið ræddi við Morgunblaðið um ranga framsetningu NRK á ýmsum atriðum varðandi gagnaver þar í landi og skýrslu sem miðillinn kvaðst hafa undir höndum, en hafði ekki, telur ekki að rekstraraðilar norskra gagnavera búi yfir fjölda leyndarmála.
Reynir Jóhannesson, framkvæmdastjóri Samtaka norskra gagnavera, ræðir við NRK og segir sumar upplýsingar einfaldlega ekki vera í boði. Ljósmynd/Samtök norskra gagnavera
Geti átt samtal við stjórnvöld um sumt
„Vísindamaður ætti að hafa nauðsynlegar upplýsingar, en vísindamaður er ekki með öryggisvottun,“ segir Reynir, sem átti sér stjórnmálaferil í Noregi áður en hann söðlaði um og tók við framkvæmdastjórastöðu gagnaverasamtakanna. Útskýrir hann í framhaldinu fyrir NRK að upplýsingar um gagnaver þurfi oftar en ekki að vernda af öryggis- eða samkeppnisástæðum.
Reynir gagnrýndi þennan fréttaflutning NRK í Morgunblaðinu í byrjun október:
„Við getum átt samtal við stjórnvöld þannig að við getum kerfisbundið tekið þetta saman og gert upplýsingarnar eins aðgengilegar og mögulegt er,“ segir Reynir. Ítarlegar upplýsingar muni hins vegar standa utan slíks samkomulags, sérstaklega upplýsingar um einstök gagnaver.
„Við verðum að hafa það hugfast hvað er samfélagslega mikilvægt. Það er ekki alltaf bara lögregla, slökkvilið og heilbrigðisþjónusta. Stundum eru það líka kæligeymslur sem hitna upp í 50 gráður,“ segir hann og vísar til netárása á stórmarkaði í Frakklandi og Svíþjóð síðustu mánuði.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
