Tveggja barna móðir vekur athygli - Í svakalegu formi eftir að hafa eignast barn í maí
Ítalska sjónvarpskonan Diletta Leotta, sem er ein helsta stjarna DAZN í umfjöllun um ítölsku A-deildina, hefur vakið athygli eftir að hún birti nýja myndasyrpu á Instagram.
Leotta, sem er 35 ára, er með rúmlega 9,3 milljónir fylgjenda á miðlinum og gefur þeim reglulega innsýn í líf sitt utan sjónvarpsskjásins.
Á myndunum, sem hún birti á mánudaginn, má meðal annars sjá hana í svörtum bikinítoppi og bleikum íþróttabuxum á meðan verið er að farða hana.
Einnig deildi hún myndum úr vinnunni, í glæsilegum klæðnaði og af fjölskyldunni.
„Brot úr núinu,“ skrifaði Leotta við myndasyrpuna.
Fylgjendur hennar tóku vel í færsluna og hrósuðu henni í athugasemdum.
„Gyðja,“ skrifaði einn fylgjandi á meðan annar sagði myndirnar einstaklega fallegar.
Leotta er gift þýska markverðinum Loris Karius, sem lék áður með Liverpool en er nú hjá Schalke í Þýskalandi.
Hjónin eiga tvö börn saman. Fyrsta barn þeirra, dóttirin Aria Rose, fæddist 16. ágúst 2023, en sonurinn Leonardo kom í heiminn 9. maí síðastliðinn.
Leotta og Karius gengu í hjónaband á Sikiley í júní 2024.
Leotta hefur um árabil verið áberandi í ítalskri íþróttaumfjöllun og nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗