Missti 4 ára son: „Enginn tímarammi á sorginni“
Berglind missti fjögurra ára son sinn af slysförum árið 2021. mbl.is/Árni Sæberg
Berglind Arnardóttir missti fjögurra ára son sinn af slysförum í apríl árið 2021. Þá var eldri sonur hennar sex ára gamall. Í kjölfarið þurfti hún ekki aðeins að takast á við eigin sorg heldur einnig að styðja son sinn í gegnum missinn og vera til staðar fyrir hann í sorginni.
Hún segir stuðning við börn í sorg gríðarlega mikilvægan, enda hafi missir og sorg ekki síður djúpstæð áhrif á börn. Góður stuðningur geti því skipt sköpum fyrir líðan þeirra, þroska og framtíðina.
Berglind er í dag stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar en hennar leið til að takast á við sorgina var að kynna sér starfið, taka þátt í því og hjálpa sér sjálfri með því að hjálpa öðrum. Hún var í fyrstu ekki tilbúin í hópastarf, líkt og boðið er upp á hjá Sorgarmiðstöð, en þörfin fyrir það kom síðar.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗