Karl Gauti: „Þetta er aðvörun“
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, líkti skattastefnu ríkisstjórnarinnar við hraðlest sem færi áfram af sívaxandi hraða og hlustaði ekki á aðvaranir. Sagði hann engan óhultan fyrir skattahækkunum ríkisstjórnarinnar og að lestin væri nú komin í Bláskógabyggð.
Þetta kom fram í máli Karls Gauta undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag, þar sem hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að halda áfram á sömu braut þrátt fyrir aðvaranir.
„Þetta er aðvörun. Skattahraðlest ríkisstjórnarinnar er nú stödd í Bláskógabyggð. Frú forseti, enginn er óhultur,“ sagði Karl Gauti.
Segist heyra en hlustar ekki
Karl Gauti hélt áfram með samlíkinguna og sagði skattahraðlestina fara áfram af sívaxandi hraða án þess að nokkuð fengi stöðvað hana.
„Þeir sem verða á leið hennar eiga sér engrar undankomu auðið. Lestarstjóri skattahraðlestar ríkisstjórnarinnar segist heyra en hann hlustar ekki. Og þegar hann segist heyra, þegar hann segist hlusta, þá heyrir hann ekki.“
Sagði hann að dregið hefði verið fyrir alla glugga lestarinnar svo þeir sem þar sætu sæju ekki hvað væri að gerast fyrir utan.
Lestin „eirir engu“
„Fyrir öllum gluggum hanga fallegar myndir úr smiðju ríkisstjórnarinnar. Núllið, sleggjan, verðmætasköpunarhaustið, ræsum vélarnar,“ sagði Karl Gauti og vísaði þar til slagorða og yfirlýsinga ríkisstjórnarinnar.
Hann sagði stjórnendur lestarinnar jafnframt hunsa fjölmörg aðvörunarskilti á leiðinni og gagnrýndi skort á stefnu um hvert ríkisstjórnin ætlaði að halda.
„Lestarstjórinn hefur ekki gert áætlun um hvert skal halda og þegar enginn veit hvert skal halda skiptir engu máli hvaða leið er valin.“
Karl Gauti lauk máli sínu á þeim orðum að „skattahraðlest ríkisstjórnarinnar eirir engu“.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗