Einar með enn einn stórleikinn
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði níu mörk og var markahæstur hjá Kristianstad þegar liðið vann Lugi, 40:36, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Andri Erlingsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guðmundsson komst ekki á blað. Baldur Fritz Bjarnason var ekki í leikmannahópnum. Gunnar Steinn Jónsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Einar Bragi hefur þegar samið við þýska félagið Göppingen og gengur til liðs við það næsta sumar. Hann hefur leikið með Kristianstad frá árinu 2024.
Kristianstad er komið í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig eftir tíu leiki, sjö sigra og þrjú töp.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗