Glódís Perla sneri aftur
Glódís Perla Viggósdóttir sneri aftur eftir hnémeiðsli þegar Bayern München vann Austria Wien, 4:0, á útivelli í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld. Landsliðsfyrirliðinn var í byrjunarliðinu og lék fyrstu 58 mínúturnar.
Bayern er komið í efsta sæti deildarkeppninnar með ellefu stig eftir fimm leiki. Chelsea er með jafnmörg stig en lakari markatölu. Lyon og Barcelona eru stigi á eftir og eiga leik til góða.
Glódís hafði síðast leikið gegn Real Madrid 28. október. Hún missti af tveimur leikjum vegna meiðslanna og var síðan ónotaður varamaður gegn París Saint-Germain og Wolfsburg.
Klara Bühl kom Bayern yfir á 27. mínútu og Pernille Harder tvöfaldaði forskotið í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Alara Şehitler bætti þriðja markinu við á 75. mínútu og Sophie Proost innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.
Grátlegt fyrir Emelíu
Emelía Óskarsdóttir kom inn á sem varamaður á 72. mínútu þegar danska liðið Köge tapaði fyrir Paris FC, 2:1, á útivelli í sömu keppni.
Catherine Paulson kom Köge yfir á 12. mínútu en Sheika Scott jafnaði á þeirri 35. og Célina Ould Hocine skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Köge er í tólfta sæti með fjögur stig eftir fimm leiki. Paris FC fór upp fyrir danska liðið með sigrinum og er með fimm stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗