Ómar fór fyrir Magdeburg
Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk þegar þýska liðið Magdeburg vann danska liðið GOG, 36:35, á útivelli í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. Hann var markahæstur hjá Magdeburg ásamt Felix Claar.
Ómar nýtti níu af fjórtán skotum sínum og gaf eina stoðsendingu. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og gaf fjórar stoðsendingar en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað.
Magdeburg er með sex stig í öðru sæti annars milliriðils. Liðið tók fjögur stig með sér úr riðlakeppninni og bætti tveimur við í kvöld.
Barcelona vann á sama tíma átta marka útisigur á Kielce í Póllandi, 32:24. Janus Daði Smárason skoraði ekki fyrir spænska liðið og Viktor Gísli Hallgrímsson varði ekki skot.
Barcelona er efst í sama milliriðli með sex stig og betri markatölu en Magdeburg. Spænska liðið tók einnig fjögur stig með sér úr riðlakeppninni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗