Fullkomið kvöld Beckham-fjölskyldunnar í París

David og Victoria Beckham þekkja París vel og vita hvar heitustu staðirnir eru. AFP/Henry Nicholls

David og Victoria Beckham hafa farið oft til Parísar og vita hvar er best að fá sér góðan mat. Þau voru nýlega í París að fagna leiklistarferli sonar síns og fóru þá á góðan veitingastað sem óhætt er að mæla með. 

Fjölskyldan var stödd í París þar sem kvikmyndin Forty Love var frumsýnd en stjörnusonurinn Romeo Beckham leikur í kvikmyndinni. Um er að ræða fyrsta kvikmynda hlutverk Romeo Beckham. Eftir frumsýninguna fór fjölskyldan út að borða ásamt kærustu Romeo, Kim Turnbull. 

Romeo Beckham var stjarna kvöldsins en hann er nú leikari.

Romeo Beckham var stjarna kvöldsins en hann er nú leikari. AFP/Toby Shepheard

Staðurinn sem varð fyrir valinu var taílenskur veitingastaður sem heitir Bambou en það er breski vefurinn Daily Mail sem greinir frá veitingastaðnum.

Staðurinn er í gamalli textílverksmiðju og er staðsettur 2. hverfi í París þar sem eru margir flottir veitingastaðir, barir og tískutengdir staðir. Matseðillinn er ekki fokdýr þrátt fyrir að stjörnur eins og Beckham-fjölskyldan borði þar. Á matseðlinum eru girnilegar súpur í forrétt og hrár fiskur og salat. Á matseðlinum eru líka dumplings og hinir ýmsu karrýréttir. Í rauninni eitthvað fyrir alla, líka Vicotru Beckham sem borðar eftir afar ströngum reglum. 

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab